Núnó og Júnía

Heiti verks
Núnó og Júnía

Lengd verks
90 mínútur

Tegund
Barnaleikhúsverk

Um verkið
Núnó og Júnía gerist í fjarlægri framtíð í landinu Kaldóníu. Hinn ungi Núnó er mesta afreksmanneskjan í Kaldóníu og fyrirmynd allra íbúa landsins í hreysti og dugnaði. Mottó Núnós er að gera betur, gera enn betur og toppa það svo. Í Kaldóníu er ekkert pláss fyrir þá sem ekki ekki standa sig og falla ekki í mótið. Einn daginn hrynur veröld Núnós þegar hann uppgötvar að hluti af honum er orðinn ósýnilegur! Hann er hefur veikst af „Þokunni“, hinni illvígu plágu sem ógnar Kaldóníu og íbúum þess. Núnó verður að leyna því að hann sé kominn með „þokuna“ því annars verður hann numin af brott af þokusveitinni. Núnó hefst handa við að leita sér lækningar áður en hann verður „þokunni“ að bráð og verður alveg ósýnilegur! Hjálpin berst honum úr óvæntri átt og ferðalagið verður til þess að Núnó kynnist sjálfum sér og heiminum alveg upp á nýtt.

Sviðssetning
Núnó og Júnía er nýtt íslenskt leikrit fyrir börn og unglinga úr smiðju Sigrúnar Huldar Skúladóttur og Söru Martí Guðmundsdóttur. Þær eru einnig höfundar leikgerðar Pílu Pínu sem sló rækilega í gegn á síðasta leikári. Sara Martí leikstýrði jafnframt uppsetningunni og hefur fengið til liðs við sig stóran hluta þess listræna teymis sem skapaði undraheim Pílu í sviðsetningu MAk í Hamraborg. Núnó og Júnía verður mikið sjónarspil hlaðið leikhústöfrum og sjónhverfingum. Tónlistarmaðurinn margrómaði, Íkorni, semur tónlistina í verkinu. Núnó og Júnía er einn af mörgum viðburðum í metnaðarfullri dagskrá MAk fyrir ungt fólk og börn. Sérstakur styrktaraðili sýningarinnar er Sparisjóður Höfðhverfinga. Við kunnum honum þakkir fyrir að styðja við framleiðslu á metnaðarfullum viðburði fyrir fjölskyldur á norðurlandi

Frumsýningardagur
18. febrúar, 2017

Frumsýningarstaður
Menningarhúsið Hof

Leikskáld
Sigrún Huld Skúladóttir og Sara Martí Guðmundsdóttir

Leikstjóri
Sara Martí Guðmundsdóttir

Danshöfundur
Katrín Mist Haraldsdóttir

Tónskáld
Stefán Örn Gunnlaugsson

Hljóðmynd
Stefán Örn Gunnlaugsson

Lýsing
Ingi Bekk

Búningahönnuður
Íris Eggertsdóttir

Leikmynd
Brynja Björnsdóttir

Leikarar
Alexander Dantes Erlendsson, Bjarni Snæbjörnsson

Leikkonur
Dominque Gyða Sigrúnardóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
mak.is