Var það Gangári?

Sviðssetning
Reykjavík Dance Festival
Vaðall

Sýningarstaður
Karamba/Dansganga

Frumsýning
4. september 2009

Tegund verks
Danssýning

Vaðall hvíslar…
Var það Gangári?

vertu velkominn með
komdu endilega nær
lofðu honum að segja þér sögu

eina örlitla sögu
frá örlitlum stað
hvaða stað?

hann er látlaust grey
gerir engum mein
næstum engum
– ég sver

Gangárinn eða leiðsögumaðurinn Ragnar Ísleifur Bragason, tekur að sér að leiða
áhorfendur í um klukkustundarlanga gönguleið um miðbæ Reykjavíkur þar sem hann fræðir fólk um sögu bæjarins.

Þegar á gönguna líður áttum við okkur á því að við erum í eyðibæ og allt það sem við sjáum er liðin tíð. Gangárinn er sá eini sem er eftirlifandi. Eða hvað, er hann manneskja? Eða er hann kannski flökkudraugur?

Rúmlega 50 einstaklingar tóku þátt í verkefninu allt frá því að vera atvinnudansarar, vinir, leikarar, eldri-borgarar, stúlknakór yfir í lúðrasveitarmeðlimi.

Danshöfundar
Vaðall
Aðalheiður Halldórsdóttir
Valgerður Rúnarsdóttir

Leikari í aðalhlutverki
Ragnar Ísleifur Bragason

Dansarar
Aðalheiður Halldórsdóttir
Valgerður Rúnarsdóttir

Sviðssetning
Reykjavík Dance Festival
Vaðall

Sýningarstaður
Karamba/Dansganga

Frumsýning
4. september 2009

 

vadall  gangari1  gangari2

– – – – – –

Reykjavík Dance Festivalhóf göngu sína árið 2002. Stofnendur eru þau Ástrós Gunnarsdóttir, Cameron Corbett, Jóhann Freyr Björgvinsson, Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Þessir sjálfstætt starfandi danslistamenn ákváðu að sameina krafta sína og skapa hátíðina sem vettvang fyrir ný íslensk dansverk.

Hátíðin í ár verður haldin dagana 3.-6. september í Hafnarfjarðarleikhúsinu þar sem frumsýnd verða sex ný íslensk dansverk. Að auki verður haldin dansganga þar sem dans mun birtast almenningi á hinum ýmsu stöðum í miðborg Reykjavíkur bæði innandyra og utan. Þá hafa skipuleggjendur erlendra danshátíða staðfest komu sína. Með komu þeirra opnast möguleiki á mikilvægum tengslanetum, erlendu samstarfi og útrás íslenskra dansverka.

Áherslur hátíðarinnar hafa verið mismunandi frá ári til árs en meginmarkmiðið hefur ávallt verið að færa danslistina nær hinum almenna borgara, auka sýnileika nútímadans í samfélaginu og kynna sjálfstætt starfandi danslistamenn á Íslandi.

Margir íslenskir dansarar og danshöfundar starfa erlendis m.a. vegna skorts á verkefnum og aðstöðu hérlendis.  Aukið framboð sýninga eykur atvinnutækifæri fyrir dansara á Íslandi.  Um leið og hátíðin leggur áherslu á innrás danslistarinnar á Íslandi er mikilvægt að huga að útrásinni.  Danslistin er dæmi um hágæða útflutningsvöru í stöðugri framþróun.  Í ár er ætlunin að fara að fordæmi hátíðarinnar 2007 og bjóða hingað skipuleggjendum erlendra danshátíða.  Dansinn er alþjóðleg listgrein og það er hlutverk okkar að efla og rækta tengslin við samstarfsaðila okkar erlendis.

Á undanförnum árum hefur verið mikil framþróun í danslistinni hérlendis.  Æ fleiri einstaklingar og hópar hafa sprottið fram og hafa skapað sér sess hérlendis sem og erlendis.  Möguleikarnir hafa einnig stóraukist með tilkomu dansbrautar innan Listaháskóla Íslands.  Nútímadanshátíð í Reykjavík er vettvangur sem skipar stóran sess í þessari framvindu og gefur danshöfundum tækifæri til að styrkjast, eflast og þroskast.

Nútímadanshátíðin er orðin mikilvægur hlekkur fyrir listformið og hefur skapað sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Samfélagslegt gildi hátíðarinnar er ótvírætt þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast nútímadansi og fjölbreytileika hans hverju sinni.