Umhverfis jörðina á 80 dögum

Heiti verks
Umhverfis jörðina á 80 dögum

Lengd verks
2 klst.

Tegund
Barnaleikhúsverk

Um verkið
Sprellfjörugur, fyndinn og ævintýralegur nýr, íslenskur söngleikur fyrir alla fjölskylduna!

Skáldsagan Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne hefur notið gífurlegra vinsælda víða um heim allt frá því hún kom út árið 1873. Karl Ágúst og Siggi Sigurjóns hafa nú samið ævintýralegan, nýjan söngleik byggðan á verkinu með fjölda nýrra og skemmtilegra laga eftir Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben úr Skálmöld.

Breski herramaðurinn Fílías Fogg veðjar um að hann geti ferðast í kringum hnöttinn á 80 dögum. Við sláumst í æsispennandi ferð með honum og Passepartout til framandi landa, siglum um öll heimsins höf og kynnumst þekktum – og minna þekktum – persónum úr mannkynssögunni. Fílías Fogg, sem í upphafi ferðar er uppfullur af hugmyndum um yfirburði breska heimsveldisins, lærir fjölmargt um lífið og tilveruna, og ekki síst um sjálfan sig. Og ástinni kynnist hann á óvæntum stað!

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
23. janúar, 2016

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið

Leikskáld
Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson

Leikstjóri
Ágústa Skúladóttir

Tónskáld
Baldur Ragnarsson, Gunnar Ben

Hljóðmynd
Baldur Ragnarsson, Gunnar Ben, Kristján Sigmundur Einarsson

Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson

Búningahönnuður
Leila Arge

Leikmynd
Högni Sigurþórsson

Leikarar
Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson, Baldur Ragnarsson, Gunnar Ben, Jón Stefán Sigurðsson

Leikkonur
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Stella Björk Hilmarsdóttir

Söngvari/söngvarar
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Baldur Ragnarsson, Gunnar Ben, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is