Tímaþjófurinn

Heiti verks
Tímaþjófurinn

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
– Einstakt verk um ástina – um óslökkvandi þrá, höfnun og missi –

Hin vel ættaða, sjálfsörugga og glæsilega Alda Ívarsen, tungumálakennari við Menntaskólann í Reykjavík, sem ætíð hefur boðið heiminum byrginn, reynist varnarlaus þegar ástin loks grípur hana fyrir alvöru, óvænt og miskunnarlaust.

Steinunn Sigurðardóttir er einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar. Skáldsaga hennar Tímaþjófurinn hefur átt miklum vinsældum að fagna bæði hér heima og erlendis frá því hún kom út árið 1986. Nú birtist verkið í fyrsta sinn á leiksviði.

Einstakt skáldverk um leynilegt ástarævintýri, höfnun og missi, og þá sársaukafullu þráhyggju sem ást í meinum getur orðið. Verk sem er skrifað af djúpum mannskilningi og meitluðum húmor.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
18. mars, 2017

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kassinn

Leikskáld
Steinunn Sigurðardóttir, Melkorka Tekla Ólafsdóttir

Leikstjóri
Una Þorleifsdóttir

Danshöfundur
Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Tónskáld
Kristinn Gauti Einarsson

Hljóðmynd
Kristinn Gauti Einarsson

Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson

Búningahönnuður
Eva Signý Berger

Leikmynd
Eva Signý Berger

Leikarar
Björn Hlynur Haraldsson,
Oddur Júlíusson

Leikkonur
Nína Dögg Filippusdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Snæfríður Ingvarsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
http://www.leikhusid.is/syningar/fyrri-leikar/syningar/timathjofurinn