Tilnefningar til Grímunnar 2023

Rétt í þessu voru tilnefningar til Grímunnar – Íslensku sviðlistaverðlaunanna tilkynntar í Tjarnarbíói.

Í ár voru 53 sviðsverk skráð af leikhúsum og sviðslistahópum í Grímuna, 9 óperur, 5 dansverk og  39 leikverk.

Valnefnd skipuð 9 fulltrúum hefur fjallað um sýningar leikársins. Meðlimir valnefndar eru fagfólk sem sinnir starfi sínu sem einstaklingar og meta framlög út frá eigin sannfæringu. Hún hefur valið 3-5 einstaklinga, teymi eða verk í hverjum verðlaunaflokki í forvali Grímunnar er hljóta tilnefningu. Í aðalvali velur nefndin sigurvegara í hverjum flokki og verða verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu að kvöldi miðvikudagsins 14. júní nk og í beinni útsendingu á RÚV.

Tilnefnt er í 17 verðlaunaflokkum að þessu sinni: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari og leikkona í aðalhlutverki, leikari og leikkona í aukahlutverki, leikmynd, búningar og lýsing ársins, tónlist og hljóðmynd ársins, söngvari ársins, dans- og sviðshreyfingar, dansari og danshöfundur ársins og Sproti ársins sem hóf göngu sína árið 2012. Að auki verða verðlaun fyrir barnasýningu ársins og heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands veitt á verðlaunahátíðinni þann 14. júní nk. Heiðursverðlaunin eru veitt einstaklingi er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi.

Tilnefningar – Gríman 2023

Sýning ársins

Chicago – Sviðssetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Ellen B. – Sviðssetning – Þjóðleikhúsið

Ex – Sviðssetning – Þjóðleikhúsið

Geigengeist – Sviðssetning Geigen í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Íslandsklukkan – Sviðssetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Leikrit ársins

Á eigin vegum leikgerð uppúr bók Kristínar Steinsdóttur eftir Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og Sölku Guðmundsdóttur
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Hið ósagða eftir Sigurð Ámundsson
Sviðsetning Sigurður Ámundason í samstarfi við Tjarnarbíó

Óbærilegur léttleiki Knattspyrnunar eftir Sveinn Ólaf Gunnarsson og Ólaf Ásgeirsson
Sviðsetning – Alltaf í boltanum í samstarfi við Tjarnarbíó

Síðustu dagar Sæunnar eftir Matthías Tryggva Haraldsson
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur
Sviðsetning – Níelsdætur í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Leikstjóri ársins

Benedict Andrews – Ellen B.
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Benedict Andrews – Ex
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Viktoría Blöndal – Óbærilegur léttleiki Knattspyrnunar
Sviðsetning – Alltaf í boltanum í samstarfi við Tjarnarbíó

Þorleifur Örn Arnarsson – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Þóra Karítas Árnadóttir – Samdrættir
Sviðsetning – Silfra Productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikkona í aðalhlutverki

Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Svartþröstur
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

María Thelma Smáradóttir – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Nína Dögg Filippusdóttir – Ex
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Guðrún S. Gísladóttir – Síðustu dagar Sæunnar
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Sara Dögg Ásgeirsdóttir – Venus í feldi
Sviðsetning – Edda productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikari í aðalhlutverki

Björgvin Franz Gíslason- Chicago
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Gísli Örn Garðarsson – Ex
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Hallgrímur Ólafsson – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Jóhann Sigurðarson – Síðustu dagar Sæunnar
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Sveinn Ólafur Gunnarsson Venus í feldi
Sviðsetning – Edda productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikari í aukahlutverki

Arnþór Þórsteinsson – Chicago
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Benedikt Erlingsson – Ellen B.
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Davíð Þór Katrínarson – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Jörundur Ragnarsson – Prinsessuleikarnir
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Ólafur Ásgeirsson – Óbærilegur léttleiki Knattspyrnunar
Sviðsetning – Alltaf í boltanum í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikkona í aukahlutverki

Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Macbeth
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Ebba Katrín Finnsdóttir – Ellen B.
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Íris Tanja Flygenring – Samdrættir
Sviðssetning – Silfra Productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Kristín Þóra Haraldsdóttir – Ex
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Þórey Birgisdóttir – Draumaþjófurinn
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Leikmynd

Egill Sæbjörnsson – Á eigin vegum
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Guðný Hrund Sigurðardóttir – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Ilmur Stefánsdóttir – Draumaþjófurinn
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Milla Clarke – Macbeth
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Mirek Kaczmarek – Prinsessuleikarnir
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Búningar

Alexía Rós Gylfadóttir & Tanja Huld Levý Guðmunsdóttir – Geigengeist
Sviðsetning – Geigen í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Guðný Hrund Sigurðardóttir – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfið við Þjóðleikhúsið

Liucija Kvašytė – Macbeth
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

María Th. Ólafsdóttir – Draumaþjófurinn
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Mirek Kaczmarek – Prinsessuleikarnir
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr Hloušek – Draumaþjófurinn
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Juliette Louste – Ég lifi enn- sönn saga
Sviðsetning – Blik Productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Kjartan Þórisson – Geigengeist
Sviðsetning – Geigen í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Mirek Kaczmarek – Prinsessuleikarnir
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Pálmi Jónsson – Macbeth
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Tónlist

Áskell Harðarson – Verk nr. 2.1
Sviðsetning – Steinunn Ketilsdóttir

Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson – Geigengeist
Sviðsetning – Geigen í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Kristjana Stefánsdóttir – Hvað sem þið viljið
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Unnsteinn Manuel Stefánsson – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfið við Þjóðleikhúsið

Urður Hákonardóttir – Hringrás
Sviðsetning – EG Studio í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Hljóðmynd

Gísli Galdur Þorgeirsson og Aron Þór Arnarsson – Ellen B.
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Sigurður Ámundason, Óskar Þór Ámundason og Andri Björgvinsson – Hið ósagða
Sviðsetning – Sigurður Ámundason í samstarfi við Tjarnarbíó

Unnsteinn Manuel Stefánsson – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfið við Þjóðleikhúsið

Urður Hákonardóttir – Hringrás
Sviðsetning – EG Studio í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Þorbjörn Steingrímsson og Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson- Macbeth
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Söngvari

Björgvin Franz Gíslason – Chicago
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Björk Níelsdóttir – Þögnin
Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Hófstillt og Ástríðufullt

Margrét Eir – Chicago
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Hye-Youn Lee – Madama Butterfly
Sviðsetning – Íslenska Óperan

Valdimar Guðmundsson – Óbærilegur léttleiki knattspyrnunar
Sviðsetning – Alltaf í boltanum í samstarfi við Tjarnarbíó

Dansari

Díana Rut Kristinsdóttir – Til hamingju með að vera mannleg
Sviðsetning – Níelsdætur í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Embla Guðrúnar Ágústsdóttir – Góða ferð inn í gömul sár
Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Ernesto Camilo Aldazábal Valdes – Íslandsklukkan
Sviðsetning – Leikhópurinn Elefant í samstarfið við Þjóðleikhúsið

Katrín Vignisdóttir – Chicago
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Þyri Huld Árnadóttir – Hringrás
Sviðsetning – EG Studio í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Danshöfundur

Gígja Jónsdóttir & Pétur Eggertsson – Geigengeist
Sviðsetning – Geigen í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Valgerður Rúnarsdóttir – Dansa, hvað er betra en að dansa
Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn

Þyri Huld Árnadóttir – Hringrás
Sviðsetning – EG Studio í samstarfi við Íslenska dansflokkinn

Dans og sviðshreyfingar

Lee Proud – Draumaþjófurinn
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Lee Proud – Chicago
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Juliette Louste – Ég lifi enn- sönn saga
Sviðsetning – Blik Productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir – Them
Sviðsetning – Spindrift Theatre í samstarfi við Tjarnarbíó

Sigríður Soffía Níelsdóttir og hópurinn – Til hamingju með að vera mannleg
Sviðsetning – Níelsdætur í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Sproti árins ásamt rökstuðningi valnefndar

Tímaritið Dunce er tilnefnt til Sprotans fyrir eftirtektarverða nýsköpun á sviði skrásetningar á danslist, kóreógrafíu og gjörningalist. Dunce veitir listafólki á þessu sviði nýjan vettvang til eiga samtal, miðla hugleiðingum sínum og halda utan um listform sem í einkenni sínu er hverfult. Dunce er einstaklega vandað í máli og myndum og miðlar íslenskri list utan landsteina ásamt því að tengja saman listamenn hvaðanæva að úr heiminum.

Tóma rýmið er tilnefnt til Sprotans fyrir að styðja dyggilega við frumsköpun og tilraunastarfsemi innan sviðslista. Tóma rýmið gefur listamönnum tækifæri til að prófa sig áfram með nýjar hugmyndir, leita nýrra leiða í sköpun og rannsaka möguleika listmiðilsins. Grasrótarstarfsemi Tóma Rýmisins er einstök á Íslandi og mjög mikilvægur hlekkur í sviðslistasenunni sem ber að styðja og styrkja.

Grasrótarstarf óperulistamanna er tilnefnt til Sprotans. Óperulistamenn hafa aldrei notið starfsöryggis á Íslandi. Þeir hafa ekki látið frumstætt starfsumhverfi og lítil sem engin laun hindra sig í að vaxa í list sinni á þessu leikári. Þessi öfluga grasrótarstarfsemi hefur fætt af sér tvær frumsamdar óperur og fjölmargar áhugaverðar óperuuppfærslur áræðinna listamanna sem hafa gætt sviðslistir á Íslandi ómetanlegu lífi sem annars hefði ekki orðið.