The Lost Ballerina

Titill verks:
The Lost Ballerina

Sviðssetning:
Katla Þórarinsdóttir í samstarfi við Laura Murphy danshöfund, Davide Bozzalla ljósmyndara

Sýningarstaður og frumsýningardagur:
Listasafn Íslands 8. september 2011 Sem hluti af Reykjavík Dance Festival

Um verkið:
The Lost Ballerina er hugarsmíð þriggja listamanna sem koma frá
ólíkum listgreinum en hafa sömu sýn og markmið varðandi listir.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði einn kaldan desember dag á Íslandi
þegar sólar naut aðeins í nokkra klukkutíma. Listamennirnir sköpuðu
sögu, innblásnir af því einstaka andrúmslofti sem skapast við það að
vera einangraður, einmana og týndur. Útkoman varð ljósmyndasería sem
er fyrsti hluti verksins og innblásturinn að dansverkinu.
The Lost Ballerina er nútíma dansverk fyrir einn dansara byggt á 
ljósmyndunum, þar sem veran á myndunum öðlast líf fyrir utan ramma
myndanna. Ljósmynaserían munu skapa grunninn af sviðsmyndinni  og
renna saman við dansinn sem endurskapar augnablik sem átti sér stað
fyrir löngu.

Leikstjóri: Laura Murphy

Danshöfundur:
Laura Murphy og Katla Þórarinsdóttir

Tónskáld:
Linda Buckley

Dansarar
Katla Þórarinsdóttir

Linkur á videoi úr sýningu
http://vimeo.com/30665877
Vefsíða leikhóps / leikhúss:
http://www.dance.is/members/katla-thorarinsdottir/