Sókrates

Heiti verks
Sókrates

Lengd verks
Uþb 1 klst og 30 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Trúðar Borgarleikhússins hafa fært okkur
dásamlegar sýningar. Við höfum séð trúðana okkar glíma við dauðasyndir og jólaguðspjallið. Nú ætla þeir að tækla heimspekina og taka Sókrates sér til fyrirmyndar – og spyrja og spyrja og spyrja þangað til við komumst að minnsta kosti skrefi nær því að vita
um hvað við getum verið sammála
í heiminum. Trúðum er ekkert óviðkomandi. Í opinni og einlægri nálgun glíma þeir við stóru spurningarnar og eru í senn fyndnir og harmrænir, grimmir og góðir.
Síðasta trúðasýning Borgarleikhússins,
Jesús litli, var valinn sigurvegari Grímunnar 2010. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft var valið leikrit ársins auk þess sem sýningin hlaut sjö Grímutilnefningar.
Gagnrýnendur hlóðu sýninguna lofi og
áhorfendur voru hrærðir og yfir sig hrifnir.
Rafael Bianciotto fæddist í Buenos Aires
í Argentínu og lærði þar tölvunarfræði og
leiklist. Í samstarfi við Mario Gonzalez, leikara í París, uppgötvaði hann töframátt grímunnar og Commedia dell’arte. Hann hefur leikstýrt
fjölda sýninga og haldið námskeið í trúðleik víða um heim. Hann leikstýrði Dauðasyndunum hér í Borgarleikhúsinu sem hlaut sex tilnefningar til Grímuverðlauna árið 2009.
Bergur Þór Ingólfsson útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Íslands árið 1995 og hefur verið leikari og leikstjóri við Borgarleikhúsið síðustu 15 ár og leikið í fjölda sýninga, meðal annars í Jesús litla og Dauðasyndunum. Hann leikstýrði Horn á höfði, Hamlet litla, Mary Poppins, Kenneth Mána og Billy Elliot sem sýnt
er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir.
Bergur hefur hlotið fjölda Grímuverðlauna í ýmsum flokkum.

Frumsýningardagur
1. október, 2015

Frumsýningarstaður
Nýja svið

Leikskáld
Bergur Þór Ingólfsson

Leikstjóri
Rafael Bianciotto, Bergur Þór Ingólfsson

Tónskáld
Kristjana Stefánsdóttir

Hljóðmynd
Garðar Borgþórsson, Kristjana Stefánsdóttir

Lýsing
Egill Ingibergsson

Búningahönnuður
Stefanía Adolfsdóttir

Leikmynd
Egill Ingibergsson

Leikarar
Bergur Þ’or Ingólfsson

Leikkonur
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is