Sending

Heiti verks
Sending

Lengd verks
Uþb 2 klst

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist í Palestínu og Bubbi Morthens túrar með Egó um landið til þess að kynna nýjustu plötu sveitarinnar: Breyttir tímar.
Ungur drengur hefur verið sendur í fóstur
til barnlausra hjónaleysa vestur á fjörðum.
Konan tekur drengnum opnum örmum en tilfinningar mannsins eru flóknari og ekki líður á löngu þar til líf hjónanna umturnast. Veruleiki drengsins og hjónaleysanna virðist á einhvern
undarlegan hátt hanga saman. Hver er þessi drengur og til hvers er hann kominn? Leikritið er leikur með tíma og rými, og gerir bjargarleysi og útskúfun að meginviðfangsefni sínu.
Bjarni Jónsson hefur hlotið margvísleg
verðlaun og viðurkenningar fyrir verk
sín, m.a. Grímuverðlaunin, Norrænu
útvarpsleikhúsverðlaunin auk þess
sem hann hefur verið tilnefndur í tvígang
til Norrænu leikskáldaverðlaunanna.

Sviðssetning
Borgarleikhúsið

Frumsýningardagur
10. september, 2016

Frumsýningarstaður
Nýja sviðið

Leikstjóri
Marta Nordal

Tónskáld
Guðmundur Vignir Karlsson

Hljóðmynd
Guðmundur Vignir Karlsson

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Stefanía Adolfsdóttir

Leikmynd
Gretar Reynisson

Leikarar
Þorsteinn Bachmann, Hilmar Guðjónsson, Elma Árni Arnarson

Leikkonur
Kristín Þóra Haraldsdóttir,
Stefanía Ágústsdóttir