Rough Sea

Rough Sea

Sviðssetning
ArtFart

Sýningarstaður
Leikhúsbatteríið

Frumsýning
29. ágúst 2009

Tegund verks
Danssýning

Við upplifum öll óviðeigandi kynferðislegar langanir, en þó höfum við einhvers konar innbyggt búr sem geymir okkar innra skrýmsli. Ég hef hleypt skrímslinu út og er sýndarþræll dýrslegra hvata.

Danshöfundur
Snædís Lilja Ingadóttir

Dansarar
Snædís Lilja Ingadóttir
Sigríður Soffía Níelsdóttir
Hjörtur Jóhann Jónsson

Hljóðmynd
Þráinn Hjálmarsson

– – – – – –

artFart hátíðin er tilraunavettvangur ungs listafólks sem hefur það að markmiði að stuðla að nýsköpun og tilraunamennsku í íslenskri sviðslist. Við spyrjum okkur hver sé staða sviðslista innan samfélagsins. Hvert er gildi hennar? Hefur sviðslistin glatað mætti sínum eða hefur aldrei verið meiri þörf á henni? Getum við skapað nýtt leikhús, leikhús sem skýtur rótum sínum í samtímanum og blómstrar eða er það dæmt til að veslast upp í skugga stuðlabergsins?

Við viljum brjóta upp staðalímynd leiklistar á Íslandi sem bókmenntagreinar og opna fyrir gagnrýna umræðu um formið sjálft, á þess eigin forsendum. Við gerum okkur grein fyrir að við erum ekki að finna upp hjólið en að okkar mati teljum við þessa hátíð nauðsynlega fyrir íslenskt listalíf og að hún muni stuðla að aukinni tilraunamennsku og rannsóknum sem nauðsynlegar séu fyrir framþróun listgreina á Íslandi.