Ríkharður III

Heiti verks
Ríkharður III

Lengd verks
U.þ.b. þrjár klukkustundir

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Ég, tveggja stafa heimsveldi

Ríkharður III er eitt af fyrstu leikritum Shakespeares og var frumflutt fyrir meira en fjögur hundruð árum. Samt hefur það ekki á nokkurn hátt misst gildi sitt, síst af öllu núna þegar siðmenning og mannúð eiga undir högg að sækja. Leikritið segir frá baráttu valdasjúks manns sem svífst einskis til að ná æðstu metorðum – verða konungur Englands. Hann vílar ekki fyrir sér að myrða þá sem ryðja þarf úr vegi og kvænast til að komast yfir krúnuna. Leikritið fjallar um hvernig hann kemst til valda sem samviskulaus morðingi. Eina markmið hans er alger yfirráð.

Þetta er átakasaga þar sem heimar karla og kvenna takast á. Valdamiklir karlar setja leikreglur heimsins og valdalitlar konur eiga ekki annarra kosta völ en að hlýða. Ríkharður glímir við fimm kynslóðir kvenna sem gera allt sem þær geta til að hindra framgöngu hans. En hann er útsmoginn og óútreiknanlegur, tungulipur og eldsnöggur að hugsa. Hann er leikari og leikstjóri í sínu eigin siðlausa sjónarspili sem hann spinnur áfram af óhugnanlegri snilld.

Sviðssetning
Borgarleikhus – Leikfélag Reykjavíkur

Frumsýningardagur
29. desember, 2018

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús – Stóra svið

Leikskáld
William Shakespeare

Leikstjóri
Brynhildur Guðjónsdóttir

Danshöfundur
Valgerður Rúnarsdóttir

Tónskáld
Daníel Bjarnason

Hljóðmynd
Baldvin Þór Magnússon

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Filippía I. Elísdóttir

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Leikarar
Hjörtur Jóhann Jónsson, Hilmar Guðjónsson, Halldór Gylfason, Valur Freyr Einarsson, Jóhann Sigurðarson. Arnar dan Kristjánsson, Davíð Þór Katrínarson

Leikkonur
Sigrún Edda Björnsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, Kristbjörg Kjeld.

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is