Mýs og menn

Heiti verks
Mýs og menn

Lengd verks
Tvær klukkustundir og tuttugu mínútur

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
George og Lennie eru farandverkamenn sem flakka saman á milli vinnustaða. Annar er risavaxinn og barnslegur, hinn smávaxinn en lífsreyndur. Þeir vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. Það er draumurinn um eigin jörð þar sem Lennie fær að halda kanínur í friði og ró og George getur ræktað jörðina. Þeir hefja vinnu á nýjum stað og skyndilega er draumurinn innan seilingar. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði.

Mýs og menn er eitt af helstu meistaraverkum bandarískra bókmennta og birtist hér í nýrri sviðssetningu. Þessi saga frá krepputímum þriðja áratugarins er löngu orðin sígild. Í henni byggir John Steinbeck á reynslu sinni sem farandverkamaður þar sem hann kynntist fólki sem varð innblásturinn að persónum verksins. Hann varpar fram spurningum um hvaða mat við leggjum á manneskjuna og hvert gildi hennar er þegar hún virðist ekki vera neinum til gagns. Steinbeck skrifaði sjálfur leikritið sem er tíður gestur á fjölum leikhúsa heimsins. Kvikmyndaútgáfa sögunnar var tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna árið 1939 og ný útgáfa hennar keppti svo um Gullpálmann í Cannes árið 1992.

Sviðssetning
Borgarleikhúsið

Frumsýningardagur
29. desember, 2012

Frumsýningarstaður
Borgarleikhúsið Stóra svið

Leikskáld
John Steinbeck

Leikstjóri
Jón Páll Eyjólfsson

Tónskáld
Davíð Þór Jónsson

Hljóðmynd
Gunnar Sigurbjörnsson

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Ilmur Stefánsdóttir og Anna Kolfinna Kuran

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Leikarar
Hilmar Guðjónsson
Ólafur Darri Ólafsson
Theodór Júlíusson
Þröstur Leó Gunnarsson
Þórir Sæmundsson
Valur Freyr Einarsson
Kjartan Guðjónsson
Halldór Gylfason
Sigurður Þór Óskarsson

Leikkonur
Álfrún Örnólfsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is