Mjallhvít

Sviðssetning
Tíu fingur

Sýningarstaður
Þjóðleikhúsið

Frumsýnt
14. apríl 2007

Tegund verks
Brúðuleiksýning ætluð börnum

Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvíti og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýningunni leiðir sögukonan, Helga Arnalds börnin í gegnum hana á nokkuð óvenjulegan hátt með töfrabrögðum, myndskyggnum, brúðum, grímum og söng.

Helga Arnalds hlaut menntun sína í leikhúsháskólanum Instituto del Teatro í Barcelona og í leikhúsháskólanum DAMU í Prag. Hún stundar nú nám við Listaháskóla Íslands í myndlist.

10 fingur er eins manns ferðaleikhús sem var stofnað árið 1994 af Helgu Arnalds og hefur ferðast milli nánast allra skóla og leikskóla í landinu auk þess að fara í ótal leikferðir erlendis.  Þá hefur Helga í gegnum tíðina fengið til samstarfs marga landsþekkta listamenn á sviði myndlistar, leiklistar og tónlistar. Allar sýningar leikhússins eru mjög myndrænar og eru byggðar upp með brúðum, grímum og skuggaleikhúsi.

Höfundur
Helga Arnalds

Leikstjóri
Þórhallur Sigurðsson

Leikkona í aðalhlutverki
Helga Arnalds

Leikmynd
Helga Arnalds