Lífsins tré

Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja svið

Frumsýning
27. október 2005

Tegund verks
Leiksýning

Lífsins tré leiðir áhorfandann á slóðir Íslendinga í Winnipeg, þar sem þeir hafa tekið upp breska siði, aka í cörum, reka verslun, sníða kjóla og reisa vöruhús og bindindishallir. Jens Duffrín, yngsti sonur Ólafs fíólín og Elsabetar, seinni konu hans, er kynlegur kvistur á ættartré fólksins frá Seyru í Borgarfirði. Eftir að hafa slitið barnsskónum í hreysahverfum Winnipeg og meðal Mennóníta, flakkar Jens um Bandaríkin með Alþjóðasirkusnum í Minneapolis.
Síðar gerist hann götusópari í sinni heimaborg og hermaður bresku krúnunnar. Málmfríður systir hans helgar líf sitt hins vegar fjölskyldu sinni, börnum og “Dætrum fjallkonunnar”, framfarafélags íslenskra kvenna. Bréf hennar til Ólafs heiðarsveins, bróðurins sem varð eftir á Íslandi, eru einlægur vitnisburður um gleði og sorgir Vesturíslendinga. Þau varpa einnig ljósi á tónlistargáfu ættmenna Ólafs fíólín og þörf þeirra fyrir að finna henni farveg í lífi sínu.

Höfundur

Bjarni Jónsson
Byggt á skáldsögu eftir
Böðvar Guðmundsson

Leikstjóri

Þórhildur Þorleifsdóttir

Leikarar í aðalhlutverki
Björn Ingi Hilmarsson
Eggert Þorleifsson
Gunnar Hansson
Halldór Gylfason
Valur Freyr Einarsson
Þór Tulinius

Leikkonur í aðalhlutverki

Edda Björg Eyjólfsdóttir
Hildigunnur Þráinsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Sóley Elíasdóttir

Leikmynd

Stígur Steinþórsson

Búningar

Filippía I. Elísdóttir

Lýsing

Lárus Björnsson

Tónlist

Pétur Grétarsson