Konan við 1000°

Heiti verks
Konan við 1000°

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Ótrúleg ævi einstakrar konu sem upplifði umrót og hörmungar tuttugustu aldarinnar víða um lönd og endaði ævina í íslenskum bílskúr.

„Ég var svo ljónheppin að fá að vera barn á tímum fasismans og gamalmenni á tímum græðginnar.“

Skáldsaga Hallgríms Helgasonar Konan við 1000° vakti á sínum tíma mikla athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hún hefur nú verið þýdd á níu tungumál og hvarvetna hlotið góða dóma og viðtökur. Hún hefur meðal annars hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar í Frakklandi og á Spáni.

Herbjörg María Björnsson átti viðburðaríka daga. Frá bernsku í Breiðafirði til stríðsloka í Berlín, frá kvöldverði á Bessastöðum til barnsmissis í Buenos Aires… og varð á endanum útlagi í eigin landi, í bílskúr í austurbæ Reykjavíkur.

Sagan byggir að hluta til á sönnum atburðum en rétt eins og skáldsagan tilheyrir leikgerðin skáldskapnum fyrst og fremst.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
26. september, 2014

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kassinn

Leikskáld
Hallgrímur Helgason

Leikstjóri
Una Þorleifsdóttir

Tónskáld
Tryggvi Baldvinsson

Hljóðmynd
Einar Sv. Tryggvason, Kristinn Gauti Einarsson, Tryggvi Baldvinsson

Lýsing
Magnús Arnar Sigurðarson

Búningahönnuður
Agnieszka Baranowska

Leikmynd
Eva Signý Berger

Leikarar
Baldur Trausti Hreinsson, Pálmi Gestsson, Snorri Engilbertsson

Leikkonur
Edda Arnljótsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Guðrún Snæfríður Gísladóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is