Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!

Titill verks:
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!

Tegund verks:
sviðsverk – einleikur 

Sviðssetning:
Leikhópurinn Leikur einn í samstarfi við Þjóðleikhúsið 

Sýningarstaður og frumsýningardagur:
Frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum 2. okt. ´11 

Um verkið:
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn! er einleikur sem Sigurður Skúlason, leikari og Benedikt Árnason, leikstjóri hafa unnið upp úr höfundarverki Williams Shakespeare. Leikurinn tekur mið annars vegar af vegferð mannsins frá vöggu til grafar og hins vegar af skyldleika leikhúss og lífs. Benedikt og Sigurður sem báðir eiga langan feril að baki í leikhúsi og hafa báðir starfað lengst af hjá Þjóðleikhúsinu segja sýninguna vera þakklætisvott til leiklistarinnar og þess besta sem hún hefur af sér alið – sköpunarverka Shakespeares. Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins Leikur einn og Þjóðleikhússins og fer fram í Þjóðleikhúskjallaranum sem nú hefur undirgengist ákveðnar breytingar og er leikhúsvænni en áður. William Shakespeare (1564-1616) er án nokkurs vafa mesta leikskáld allra tíma.  Og ekki aðeins það, heldur er hann einn mesti andans jöfur sem um getur. Í meir en 400 ár hafa verk hans verið þýdd á ótal tungumál, prentuð og endurprentuð, lesin og leikin um allan heim; á leiksviði, í hljóðvarpi, í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Hann er mest leikni höfundur sögunnar fyrr og síðar. Ekki að ófyrirsynju. Verk hans virðast eiga við alls staðar og á öllum tímum enda eru þau í eðli sínu hafin yfir stund og stað. Hann er maður allra tíma! Þeir Sigurður og Benedikt vilja taka áhorfendur með sér í ferðalag um heim Shakespeares og velta fyrir sér hugmyndum hans um mannfólkið sem „aðeins leikara“ á „leiksviði veraldarinnar“ og draga upp myndir af þeim hlutverkum sem við þurfum að glíma við í „sjö þáttum eigin ævi“. Þetta er ferðalag inn í eðli mannssálarinnar, að kjarna hennar kannski, þar sem á vegi okkar verður jafnt það sem við köllum gott eða vont, rétt eða rangt, guðdómlegt eða djöfullegt!

Höfundar:
Sigurð Skúlason og Benedikt Árnason, byggt á höfundarverki Williams Shakespeare

Leikskáld:
William Shakespeare 

Leikstjóri:
Benedikt Árnason 

Lýsing:
Aðstoð við lýsingu: Lárus Björnsson                 

Búningahönnuður:
Aðstoð við búning: Filippía Elíasdóttir

Leikarar:
Sigurður Skúlason

vefsíða leikhúss:

www.leikhusid.is