Hver er hræddur við Virginíu Woolf?

Heiti verks
Hver er hræddur við Virginíu Woolf?

Lengd verks
Uþb 2 klst 30 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Marta og Georg elska hvort annað. Þau vita allt um sig og lífið en samt – eða einmitt þess vegna – eru þau ekki hamingjusöm. Hann er sögukennari við lítinn háskóla, hún heimavinnandi. Að lokinni rektorsveislu í háskólanum býður Marta nýja unga líffræðikennaranum og konu hans heim í eftirpartý án vitneskju eiginmanns síns. Hann þekkir allt of vel gestaleiki konu sinnar.
Hún veit allt um völd sín og áhrif og nýtur
þess að leika sér að tilfinningum annarra.
Miskunnarlaus stigmagnandi barátta hrekur fjórar glæsilegar persónur út á ystu nöf í þessu stórkostlega leikriti.

Edward Albee er eitt fremsta leikskáld
Ameríku. Leikritið Hver er hræddur við
Virginíu Woolf? var frumsýnt í New York
árið 1962 og kvikmyndað skömmu síðar
með þeim Elizabeth Taylor og Richard Burton og hefur allar götur síðan talist til sígildra leikrita og verið leikið um allan heim.

Frumsýningardagur
15. janúar, 2016

Frumsýningarstaður
Borgarleikhúsið Nýja svið

Leikskáld
Eward Albee

Leikstjóri
Egill Heiðar Anton Pálsson

Tónskáld
Margrét Kristín Blöndal

Hljóðmynd
Þórður Gunnar Þorvaldsson

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Búningahönnuður
Helga I. Stefánsdóttir

Leikmynd
Gretar Reynisson

Leikarar
Hilmir Snær Guðnason
Eysteinn Sigurðarson

Leikkonur
Margrét Vilhjálmsdóttir
Elma Stefanía Ágústsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is