Heima er best

Heima er best

Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja svið

Frumsýning
25. september 2009

Tegund verks
Leiksýning

Tveir bræður leika sama leikritið aftur og aftur undir ógnarstjórn föður síns. Innan tveggja tíma hafa þrír menn drukkið sex dósir af bjór, borðað slatta af kexi með smurosti og sporðrennt grilluðum kjúklingi með undarlegri blárri sósu. Innan tveggja klukkutíma munu fimm manneskjur týna lífi. Sumsé. Allt eins og það á að vera. Í íbúð feðganna er raunveruleikinn endurskapaður og settur á svið með aðferðum farsans. Grófur ofleikur, eldsnögg búningaskipti og ógnvænlegur hraði. Heima er best er einstakt leikrit sem fær mann til að skellihlæja á meðan hrollurinn hríslast niður hrygginn.

image-4

Enda Walsh (1967) er fæddur í Dublin á Írlandi og hafa verk hans verið sviðsett víða um heim. Tvö leikrita hans hafa verið sýnd hérlendis, Disco Pigs og Misterman. Walsh er höfundur hinnar margverðlaunuðu kvikmyndar Hunger frá 2008. Heima er best (Walworth Farce) hlaut afbragðs viðtökur þegar það var frumsýnt í National Theatre í London í fyrra.

image-3

Höfundur
Enda Walsh

Þýðing
Heiðar Sumarliðason

Leikstjórn
Jón Páll Eyjólfsson

Leikarar í aðalhlutverkum
Guðjón Davíð Karlsson
Jörundur Ragnarsson
Þröstur Leó Gunnarsson

Leikkona í aðalhlutverki
Dóra Jóhannsdóttir

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Búningar
Ilmur Stefánsdóttir

Gervi
Sigríður Rósa Bjarnadóttir

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist
Hallur Ingólfsson

image-5

Leikfélag Reykjavíkur er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins. Leikfélagið var  stofnað 11. janúar 1897 er tveir hópar áhugamanna um leiklist sameinuðust í eitt félag. Helsti hvatinn að stofnun félagsins var bygging Iðnaðarmannahússins við Tjörnina.

Allir stofnendur Leikfélags Reykjavíkur voru áhugamenn þ.e. höfðu annað aðalstarf og fóru því æfingar og allt starf leikhússins fram  utan venjulegs vinnutíma. Meðlimir Leikfélagsins voru allir meðábyrgir í rekstri félagsins og voru skuldbundnir samkvæmt lögum félagsins að greiða ákveðna upphæð ef til gjaldþrots kæmi. Ákvarðanir voru lýðræðislegar varðandi verkefnaval og almennan rekstur. Leikarar fengu greitt  kvöldkaup fyrir hvert sýningarkvöld en höfðu jafnan grunntekjur úr sínu aðalstarfi.

Borgarleikhúsið var opnað í október 1989 og voru við það tækifæri frumsýndar tvær nýjar leikgerðir á sögum Halldórs Laxness, Ljósi heimsins á Litla sviðinu og Höll sumarlandsins á Stóra sviðinu.

Borgarleikhúsið er stærsta og best búna leikhús landsins, 10.400 m2 að stærð. Að auki telst það í hópi best búnu leikhúsa Evrópu. Í upphafi voru sviðin tvö, Stóra sviðið og Litla sviðið. Stóri salurinn er blævængslaga með einu, hallandi gólfi og tekur 529 manns í sæti, en sá litli er sexhyrndur með breytilegri sætaskipan og tekur að jafnaði um 170 manns í sæti, en hefur tekið hátt á þriðja hundrað gesta. Í október 2001 var þriðja sviðinu bætt við, Nýja sviðinu, sem í dag er fullkominn ,,svartur kassi“ sem býður uppá mikla möguleika hvað varðar rýmisnýtingu. Sæti eru fyrir 300 áhorfendur. Þriðja hæðin, kaffileikhúsið; lítill salur við mötuneyti starfsmanna, hefur auk þess verið notaður við ýmsar uppákomur, fyrirlestra og sýningar en salurinn tekur um 70 manns í sæti.

Frá opnun Borgarleikhússins hefur Leikfélag Reykjavíkur staðið fyrir metnaðarfullu starfi. Hjarta leikhússins er leikhópurinn sem flutti stoltur frá ,,gamla miðbænum“  í ,,nýja miðbæinn“ og hefur að jafnaði staðið fyrir öflugri en jafnframt fjölbreyttri verkefnaskrá ár hvert. Að auki hefur Leikfélagið tryggt annarri menningarstarfsemi aðstöðu í húsinu, boðið til sín gestaleikjum og tekið þátt í innlendu sem erlendu samstarfi. Borgarleikhúsið er eins og Iðnó forðum, menningarmiðja í Reykjavík.