Hafið

Heiti verks
Hafið

Lengd verks
2:15

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Kraftmikið átakaverk beint úr íslenskum veruleika.

Hafið er meðal þekktustu verka í íslenskri leiklistarsögu, en leikritið sló rækilega í gegn þegar það var frumflutt í Þjóðleikhúsinu árið 1992, og samnefnd kvikmynd byggð á því öðlaðist miklar vinsældir. Verkið er nú sviðsett í Þjóðleikhúsinu í nýrri gerð, á 70 ára afmæli leikskáldsins.

Hafið fjallar um valdamikinn útgerðarmann í sjávarþorpi, fjölskyldu hans og grimmileg átök um fjölskylduauðinn. Systkinin vilja að faðirinn selji kvótann og flytji í þjónustuíbúð í Reykjavík. Gamli jaxlinn hefur aðrar fyrirætlanir. Hann býður börnunum sínum og mökum þeirra í áramótaheimsókn. Uppgjör innan fjölskyldunnar er óumflýjanlegt. Enginn getur orðið samur eftir.

Hafið er átakamikill fjölskylduharmleikur, þrunginn spennu, en líkt og önnur verk höfundar jafnframt fullt af beittum húmor.

Hafið hlaut Menningarverðlaun DV, var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna og valið til sýningar á leiklistarhátíðinni í Bonn. Verkið hefur verið sett upp víða um Evrópu. Leikritið kemur út í nýju leikritasafni í tilefni af stórafmæli skáldsins.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
26. desember, 2017

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið

Leikskáld
Ólafur Haukur Símonarson

Leikstjóri
Sigurður Sigurjónsson

Tónskáld
Guðmundur Óskar Guðmundsson og fleiri

Hljóðmynd
Kristján Sigmundur Einarsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson

Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson

Búningahönnuður
Þórunn María Jónsdóttir

Leikmynd
Finnur Arnar Arnarson

Leikarar
Þröstur Leó Gunnarsson, Baldur Trausti Hreinsson, Snorri Engilbertsson, Baltasar Breki Samper, Oddur Júlíusson

Leikkonur
Guðrún S. Gísladóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Sólveig Arnarsdóttir, Snæfríður Ingvarsdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is/syningar/hafid