Gyðjan í vélinni

Sviðssetning
Vatnadansmeyjafélgið Hrafnhildur

Sýningarstaður
Varðskipið Óðinn

Frumsýning
10. maí 2007

Tegund verks
Leiksýning/gjörningur 

Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur leiðir sýningu um borð í elsta skipi Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Óðinn fær þá nýtt yfirbragð þar sem ímyndunaraflið fær að flæða um hvern krók og kima. Skipið er míkrókosmos, heimur út af fyrir sig. Áhorfendur ferðast utan frá og inn; ofan frá og niður. Með því að stíga um borð er komið inn í nýjan heim í tíma og rúmi.

Í sýningunni er brugðið upp táknmyndum af konunni gegnum árþúsundir, saga hennar og samhengi viðrað á nýstárlegan hátt. Saumuð verða hjartasár, keppir fylltir, málshættir bróderaðir. Hugurinn baðaður í hlaupi, hunangi, royal-búðingi og majónesi. Uppákomur í bland við innsetningar, tónlist og dans. Áhorfendur eru leiddir um vistarverur skipsins, ganga og geymslur, káetur og klósett. Hvernig er konan þegar búið er að skræla hana og skoða og hún síðan sett inn í heim sem hún hefur aldrei átt þátt í að skapa? Í lokin er áhorfandinn staddur í vélarrúminu, hjarta skipsins, þar sem takturinn er hreinn og klár og hvert slag sendir frá sér boð um það sem á eftir kemur – hið óvænta er væntanlegt.

Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur var stofnað árið 1991.

Höfundur
Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur

Leikstjórn
Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur

Leikkonur í aðalhlutverkum
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
Halla Mrgrét Jóhannesdóttir
Katrín Þorkelsdóttir
Margrét Vilhjálmsdóttir
Sigrún Sól Ólafsdóttir

Leikmynd
Halla Gunnarsdóttir

Búningar
Ríkey Kristjánsdóttir
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

Lýsing
Arnar Ingvarsson

Tónlist
Davíð Þór Jónsson

Danshöfundur
Bjartmar Þórðarson