Gosi

Heiti verks
Gosi

Lengd verks
65

Tegund
Barnaleikhúsverk

Um verkið
Sagan um Gosa gerist inni í Ævintýraskóginum en eins og Lottu er von og visa blandast fleiri þekkt ævintýri inn í verkið. Verkið ber okkur einnig inn í háan turn þar sem við hittum skemmtilega stelpu að nafni Ósk með afskaplega langa fléttu sem fær innblástur sinn frá sögunni um Garðabrúðu og á öðrum stað í Ævintýraskóginum verðum við vitni að því þegar þrjár óskir valda miklum vandræðagangi, saga sem er ekki mörgum kunn í dag.

Sviðssetning
Höfundur verksins er Anna Bergljót Thorarensen en þetta er áttunda verkið sem hún skrifar fyrir hópinn. Hún semur einnig lagatexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni og Stefáni Benedikt Vilhelmssyni. Í Gosa eru samtals 10 glæný og stórskemmtileg lög sem eru samin af fyrrnefndum Baldri, Birni Thorarensen og Rósu Ásgeirsdóttur.Öllu þessu er síðan haldið saman af höfundinum, sem einnig leikstýrir sýningunni, og danshöfundinum Berglindi Rafnsdóttur. Söngleikurinn er sýndur um land allt undir berum himni.

Frumsýningardagur
23. maí, 2018

Frumsýningarstaður
Elliðaárdalur

Leikskáld
Anna Bergljót Thorarensen

Leikstjóri
Anna Bergljót Thorarensen

Danshöfundur
Berglind Rafnsdóttir

Tónskáld
Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir

Hljóðmynd
Björn Thorarensen

Búningahönnuður
Kristína R. Bergman

Leikmynd
Sigsteinn Sigurbergsson

Leikarar
Björn Thorarensen
Sigsteinn Sigurbergsson
Stefán Benedikt Vilhelmsson

Leikkonur
Anna Bergljót Thorarensen
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
Huld Óskarsdóttir
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir

Söngvari/söngvarar
Anna Bergljót Thorarensen
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
Huld Óskarsdóttir
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir
Björn Thorarensen
Sigsteinn Sigurbergsson
Stefán Benedikt Vilhelmsson

Dansari/dansarar
Anna Bergljót Thorarensen
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
Huld Óskarsdóttir
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir
Björn Thorarensen
Sigsteinn Sigurbergsson
Stefán Benedikt Vilhelmsson

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhopurinnlotta.is
www.facebook.com/leikhopurinnlotta/
www.instagram.com/leikhopurinnlotta/