Gestur

Sviðssetning

Óperufélagið Mossini

Sýningarstaður
Iðnó

Frumsýning
22. október 2005

Tegund verks
Ópera

Söngfarsinn “Gestur – Síðasta máltíðin” er ný íslensk “hinsegin” óperetta/leikverk með söngvum. Verkið fjallar um þá Lauga og Óliver sem eru samkynhneigð hjón í Grafarholtinu og nýja nágrannann þeirra, atvinnuflugmanninn og sjarmatröllið Gest. Laugi er heimavinnandi en Óli vinnur í banka og þeir una nokkuð glaðir við sitt þar til gesturinn Gestur setur líf þeirra úr skorðum. Smávægilegur misskilningur kallar fram afbrýði og hefndarhug sem kemur af stað bráðfyndinni atburðarrás með óvæntum endi.

Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt verk af þessu tagi er frumsýnt hérlendis og því stórmerkilegur viðburður í íslensku menningarlífi. Tónlistin er ákaflega vönduð og áheyrileg og spannar fjölmargar stílgerðir vestrænnar tónlistar; eina stundina er hún létt og fjörug í ætt við Mozart og aðra hádramatísk og rómantísk. En alltaf er léttur undirtónn. Leiktextinn er farsakenndur og meinfyndinn og hann ásamt tónlistinni myndar þetta stóskemmtilega verk.

Höfundar

Gautur G. Gunnlaugsson
Gunnar Kristmannsson

Leikstjóri
Þröstur Guðbjartsson

Leikarar í aðalhlutverki
Hrólfur Sæmundsson
Gautur G. Gunnlaugsson
Gunnar Kristmannsson

Tónlistarstjórn

Gautur G. Gunnlaugsson
Gunnar Kristmannsson
Raúl Jiménez

Söngvarar

Hrólfur Sæmundsson
Gautur G. Gunnlaugsson
Gunnar Kristmannsson