Gamli maðurinn og hafið

Heiti verks
Gamli maðurinn og hafið

Lengd verks
Um 50 mín.

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Gamall maður, lítill bátur, risastór fiskur og hið óendanlega haf. Sígild saga Ernest Hemingway um epíska baráttu er hér sögð í gegnum ljóðrænan miðil brúðuleikhússins í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu.
„Maðurinn er ekki gerður til að bíða ósigur. Það er hægt að granda manni en ekki sigra hann“. Gamli maðurinn og hafið eftir Ernest Hemingway kom fyrst út árið 1952 og er eitt langlífasta verk hans. Sagan, sem sögð er á einfaldan en jafnframt kraftmikinn hátt, færði Hemingway bæði Pulitzer bókmenntaverðlaunin og bókmenntaverðlaun Nóbels.

Bernd Ogrodnik heillaði Listahátíðargesti árið 2006 með frumsýningu hins byltingarkennda leikrits Metamorphosis sem síðan hefur ferðast um heiminn við frábærar undirtektir. Hann færir nú sígilda sögu Hemingway á svið í fyrsta skipti í íslensku leikhúsi með brúðuleiksýningu fyrir fullorðna áhorfendur.
Hið sígilda stef um manninn sem þarf að kljást við náttúruöflin og sýna hugrekki og dug við lífshættulegar aðstæður, á sér samhljóm meðal Íslendinga enda segir sagan að Hemingway hafi fundið innblástur fyrir bókina við lestur meistaraverks Gunnars Gunnarssonar, Aðventu, sem skrifuð var árið 1933 og var síðar þýdd yfir á ensku.

Sviðssetning
Brúðuheimar í samstarfi við Þjóðleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík

Frumsýningardagur
26. maí, 2012

Frumsýningarstaður
Kúlan, Þjóðleikhúsi

Leikskáld
Bernd Ogrodnik

Leikstjóri
Þórhallur Sigurðsson

Hljóðmynd
Bernd Ogrodnik og Halldór Bjarnason

Lýsing
Lárus Björnsson

Búningahönnuður
Bernd Ogrodnik og búningadeild Þjóðleikhússins

Leikmynd
Bernd Ogrodnik

Leikarar
Bernd Ogrodnik

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is