Galdrakarlinn í Oz

Galdrakarlinn í Oz

Sviðssetning
Borgarleikhúsið
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Stóra svið

Frumsýning
17. september 2011

Tegund verks
Söngleikur ætlaður börnum

Galdrakarlinn í OZ er einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma. Sígilt ævintýri um Dóróteu sem leggur upp í langferð til Gimsteinaborgarinnar handan regnbogans. Raunveruleikinn er grár og tilbreytingarlaus, fólk vinnur mikið og brosir sjaldan. Dórótea þráir eitthvað annað, stórkostlegra og ævintýralegra, hana dreymir um landið handan regnbogans.

Dag nokkurn gerir ofsaveður og hvirfilbylur feykir henni til ævintýralandsins Oz þar sem allt getur gerst. Dórótea er þó ekki fyrr komin en hún uppgötvar að hana langar aftur heim. Aðeins Galdrakarlinn í Gimsteinaborg getur hjálpað henni þangað. Á leið sinni til hans eignast hún þrjá vini, fuglahræðuna sem hefur engan heila, ljónið sem skortir hugrekki og tinkarlinn sem vantar hjarta. Saman lenda þau í ótal skemmtilegum en hættulegum ævintýrum þar sem við sögu koma góða Norðannornin, vonda Austannornin og urmull af vættum og kynjaverum; valmúar, snjófólk, landsfeður, krútt, pússarar, töffarar, vinkar, draugar, tjúttarar, handsnyrtar og fiðlarar.

Ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz er í tölu frægustu og útbreiddustu barnabóka heims. Höfundurinn Frank Baum (1856–1919) skrifaði fjölda bóka um landið Oz og íbúa þess. Það jók enn á frægð Galdrakarlsins í Oz þegar Hollywood gerði söngvamynd árið 1939 eftir sögunni. Myndin var ein fyrsta litkvikmyndin í Hollywood og skaut hinni 16 ára Judy Garland eftirminnilega upp á stjörnuhimininn.

Höfundar
Frank Baum

Tónlist
Harold Arlen

Söngtextar
E. Y. Harburg

Þýðing
Bergur Þór Ingólfsson

Leikstjórn
Bergur Þór Ingólfsson

Leikarar
Halldór Gylfason
Hilmar Guðjónsson
Jóhann Sigurðarson
Þórir Sæmundsson
Þórhallur Sigurðsson (Laddi)

Leikkonur
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Lára Jóhanna Jónsdóttir

Auk 36 barna

Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson

Búningar
Helga I. Stefánsdóttir

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Hljóð
Thorbjørn Knudsen

Tónlistarstjórn
Kristjana Stefánsdóttir

Danshöfundur
Katrín Ingvadóttir

Myndband:
Bragi Þór Hinriksson