Fullkominn dagur til drauma

Titill verks:
Fullkominn dagur til drauma

Tegund verks:
dansverk 

Sviðssetning:
Íslenski Dansflokkurinn

Sýningarstaður og frumsýningardagur:
Stóra svið Borgarleikhússins, frumsýnt 30. September 20

Um verkið: Hver sena í verkinu líkist draumkenndum aðstæðum. Verkið líkist súrrealískri mynd með mismunandi sögum og ólíkum litum, en þó allar innan sama ramma, hangandi á sama veggnum.
Í draumi færast átök og umhverfi frá einum stað til annars, upplifunin er raunveruleg en á sama tíma draumkennd. Upplifun skilningarvitanna og sterk tilfinning um veru á vissum stað hríslast um líkamann en allt í einu flyst vitundin annað og aðstæður eru skyndilega ókunnar.
Í sköpunarferlinu vann Lachky náið með dönsurum Íslenska dansflokksins enda tekst honum að laða fram sérkenni hvers dansara og flétta þeim sérkennum saman við persónulegan, hnyttinn og duttlungafullan stíl sinn.
„Hver dansari er í mínum augum eins og teiknimyndafígúra. Ég reyni að sjá þau eins og þau eru, þó með mínum eigin augum“ segir Lachky. „Annar mjög mikilvægur þáttur í vinnslu verksins er líkamlegi þátturinn, sem endurspeglar þéttleika og kraft líkamans, fegurð dansins í sínum margbreytileika en um leið í einfaldleika sínum.

Danshöfundur:
Anton Lachky

Hljóðmynd:
Sálumessa eftir Guiseppe Verdi og Sálumessa í D moll eftir Luigi Cherubini

Lýsing:
Aðalsteinn Stefánsson

Búningahönnuður:
Sigrún Úlfarsdóttir

Dansarar: 
Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Emilía Benedikta Gísladóttir, Hannes Þór Egilsson, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Þyrí Huld Árnadóttir

Linkur á videoi úr sýningu: http://www.youtube.com/watch?v=kEZ8DLpul2E

Vefsíða leikhóps / leikhúss: www.id.is