Fjalla-Eyvindur

Tegund verks: ÚTVARPSVERK

Sviðssetning: ÚTVARPSLEIKHÚSIÐ

Sýningarstaður og frumsýningardagur: Frumflutt í Útvarpsleikhúsinu 1. janúar 2012

Um verkið:

,,Ég sá eitt sinn í draumi tvær mannverur, eina lögmál var ást þeirra. Þau voru hvort     annars spegill. Í þeim spegli gat ekkert dulist.”

Leikritið Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson er byggt á samnefndri þjóðsögu og er ein af perlum íslenskra leikbókmennta. Þar segir frá Höllu ekkju í góðum efnum sem að ræður til sín vinnumanninn Kára. Þau fella hugi saman og hún gerir hann brátt að ráðsmanni sínum en Kári á sér leyndarmál sem að reynist þeim örlagaríkt. Þegar Halla kemst að sannleikanum stendur hún frammi fyrir vali. Á hún að flýja til fjalla ásamt ástmanni sínum útskúfuð úr samfélaginu eða lifa áfram í öryggi án ástar?

Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslensks leiksviðs og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag og það gerði fyrir hundrað árum síðan.

Í þessari útvarpsleikgerð heyrast brot úr útvarpsflutningnum á leiksýningu Leikfélags Reykjavíkur á Fjalla-Eyvindi frá árinu 1968.

Leikskáld: Jóhann Sigurjónsson

Leikstjóri: Marta Nordal

Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson

Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Bjartur Guðmundsson og Valdimar Örn Flygenring

Vefsíða leikhóps/leikhúss: www.ruv.is/leikhus