Ferðir Múnkhásens Baróns

Ferðir Múnkhásens Baróns

Sviðssetning:
Gaflaraleikhúsið

Sýningarstaður og frumsýningardagur:
Gaflaraleikhúsið – 10. mars 2012

Um verkið:
Kostulegar lygasögur Múnkhásens eru frábær efniviður í ævintýralega leiksýningu, þar sem áhorfendur munu svo sannarlega þurfa að hafa sig alla við og hamast við að trúa ? eða kannski öllu heldur hamast við að skemmta sér yfir því að einhver skuli reyna að ljúga að þeim svona ólíklega. Í verkinu sjálfu verður leitast við að hafa sannleikann og lygina og togstreituna þar á milli sem einskonar leiðarhnoða. Hvenær er verið að ljúga og hvenær er verið að segja satt. Og hvernig líður manni sem aldrei er trúað? Og hvernig líður honum þegar allir trúa lyginni hans? Hvað drífur áfram lygina og stórkarlalegar hetjusögurnar? Húmor? Krónísk ýkisýki? Minnimáttarkennd? Þetta mun þó vonandi verða meira undirliggjandi og aldrei yfirskyggja það sem mestu máli skiptir? Að hafa gaman.
Fyrst og fremst er ætlunin að gera sýninguna að skemmtilegu, töfrum slungnu og ævintýralegu sjónarspili fyrir alla aldurshópa; sannkölluðu konfekti fyrir skilningarvitin, hlöðnu húmor og ólíkindalátum. Barnvæna fullorðinssýningu og fullorðinsvæna barnasýningu, sem þolir sýningar jafnt klukkan þrjú á sunnudögum, sem á kvöldsýningartímum. Kjarninn inni í öllu þessu sjónarspili eru listilega sagðar lygasögur Múnkhásens, þar sem frásagnargleðin og lygin veltast í einni sæng og bókstaflega ALLT getur gerst  og gerist  fyrir augunum á okkur. Sýningin myndi þannig verða full af óvæntum og skemmtilegum leikhús-trixum og áskorunum fyrir leikmynda-, búninga-, gerva-, ljósa- og effekta-hönnuði.

Leikskáld:
Sævar Sigurgeirsson Ágústa Skúladóttir og leikhópurinn

Leikstjóri:
Ágústa Skúladóttir

Tónskáld:
Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilmarsson, Baldur Ragnarsson

Lýsing:
Björn Elvar Sigmarsson

Búningar:
Axel Hallkell Jóhannesson

Leikmynd:
Axel Hallkell Jóhannesson

Leikarar:  
Gunnar Helgason
Magnús Guðmundsson

Leikkonur:  
Ágústa Eva Erlendsdóttir
Björk Jakobsdóttir
Virginia Gillard

Vefsíða leikhóps / leikhúss:

www.gaflaraleikhusid.is