Farsæll farsi

Sviðssetning
Leikfélag Akureyrar

Sýningarstaður
Samkomuhúsið

Frumsýning
4. mars 2011

Tegund verks
Leiksýning

Farsæll er farsi er gamanleikur eins og þeir gerast bestir. Framhjáhald, felurleikur, misskilningur og allrahanda ólíkindatól. Öll hlutverkin eru leikin af tveimur leikurum sem eykur enn á spennuna.

Herbert skrifaði metsölubókina „Farsælt hjónaband“, en er hjónaband hans sjálfs eins fullkomið og bókin gefur til kynna? Skyldi spjallþáttastjórnandinn Ellý Matt koma upp um „hneyksli aldarinnar“, eða kafnar hún inni í fataskáp áður en það tekst? Hvað er þingmaður Miðaldra grænna að gera í næsta herbergi? Verður þetta á endanum farsæll farsi, eða harmrænt tímamótaverk í anda Ingmar Bergmans?

Farsll_farsi_copyHöfundar
Philip LaZebnik og Kingsley

Þýðing og staðfærsla
Karl Ágúst Úlfsson

Leikstjórn
María Sigurðardóttir

Leikari í aðalhlutverki
Jóhann G. Jóhannsson

Leikkona í aðalhlutverki
Edda Björg Eyjólfsdóttir

Leikmynd
Axel Hallkell

Búningar
Axel Hallkell

Lýsing
Freyr Vilhjálmsson

Tónlist/Hljóðmynd
Arnar Tryggvason
Gunnar Sigurbjörnsson

Farsll_farsi_2