Emma og Ófeigur

Sviðssetning

Stopp-leikhópurinn

Sýningarstaður
Iðnó

Frumsýning
25. mars 2006

Tegund verks
Barnasýning
Verkið fjallar um tvö ungmenni þau Emmu og Ófeig. Þegar leikritið hefst er Emma nýbúin að missa móður sína og ný kona (Geirþrúður) komin í hennar stað á heimilið.
Emma er hálf miður sín og einmana því pabbi hennar er upptekin af nýju konunni og veitir henni því litla athygli.Grunar hún nýju konuna um græsku og að eitthvað sé … rotið í Danaveldi. Hún kynnist síðar Ófeigi, myndarpilti en margt á eftir að gerast áður en spurt er að leikslokum.
Leikritið er hátíðarsýning Stoppleikhópsins í tilefni af 10 ára leikafmæli og er lauslega byggt á Hamlet eftir William Shakespeare. Verkið er samspil ýmissa stíla og leikur að orðum. Þar er vísað beint og óbeint í ýmis bókmenntaverk, ekki aðeins eftir Shakespeare heldur einnig önnur klassísk verk, ævintýri og bíómyndir.

Höfundar

Árni Ibsen
Vala Þórsdóttir

Leikstjóri

Ágústa Skúladóttir

Leikarar í aðalhlutverki

Eggert Kaaber
Sigurþór Albert Heimisson

Leikkona í aðalhlutverki

Katrín Þorkelsdóttir

Leikmynd

Guðrún Öyahals

Búningar

Guðrún Öyahals

Tónlist

Björn Thorarensen