Elsku barn

Elsku barn

Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja sviðið

Frumsýning
7. januar 2011

Tegund verks
Leiksýning

Ung móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er byggt á opinskáum viðtölum við alla aðila málsins.

Engu hefur verið bætt við og allt er orðrétt haft eftir. Hvert er eðli sannleikans? Veldur í raun hver á heldur? Er hægt að lifa með ófyrirgefanlegum glæp? Er hægt að hreinsa manneskju af glæp sem ekki var framinn? Hvert er gjaldið fyrir réttlæti?

Elsku barn er nístandi leikrit sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um margvíslega birtingarmynd lyginnar.

Dennis Kelly (1970) er í hópi fremstu leikskálda Breta um þessar mundir og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta leikskáld Evrópu. Frá árinu 2003 hefur hann skrifað alls átta leikrit, m.a. Love and Money sem var tilnefnt til Olivier-verðlaunanna og Munaðarlaus sem sýnt var hér á landi síðasta vetur við góðar undirtektir.

Höfundur
Dennis Kelly

Þýðing
Hafliði Arngrímsson

Leikstjórn
Jón Páll Eyjólfsson

Leikkonur í aðalhlutverkum
Halldóra Geirharðsdóttir
Unnur Ösp Stefánsdóttir

Leikarar í aukahlutverkum
Benedikt Erlingsson
Hallgrímur Ólafsson
Valur Freyr EInarsson

Leikkona í aukahlutverki
Guðrún Bjarnadóttir
Nína Dögg Filippusdóttir

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Búningar
Ilmur Stefánsdóttir

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Tónlist/Hljóðmynd
Hallur Ingólfsson