Ekkert er sorglegra en manneskjan

Heiti sýningar:
Ekkert er sorglegra en manneskjan

Tegund verksins:

Sviðssverk

Sviðssetning:
Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikskáld:
Adolf Smári Unnarsson

Nýtt Leikskáld: Checked

Leikstjóri:
Adolf Smári Unnarsson

Hljóðmynd:
Friðrik Margrétar-Guðmundsson

Búningahönnuður:
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Leikmynd:
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Leikkona í aðalhlutverki:
Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, María Sól Ingólfsdóttir

Leikari í aðalhlutverki:
Dagur Þorgrímsson, Ólafur Freyr Birkisson

Söngvari:
Dagur Þorgrímsson, Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, María Sól Ingólfsdóttir, Ólafur Freyr Birkisson

Tónskáld:
Friðrik Margrétar-Guðmundsson

Lýsing:
Hamingjan, og fálmkennd leit manneskjunnar að henni, er viðfangsefni þessarar nýju íslensku óperu eftir tónskáldið Friðrik Margrétar-Guðmundsson, í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar.

Ný kynslóð sviðslistafólks brýst fram á sjónarsviðið með gáskafullum leik að bæði efni og formi. Fjórar fígúrur ráfa um sviðið, þær leita að merkingu og velta því fyrir sér hvað færir þeim ánægju. Fátt virðist þó um svör, enda er ekkert sorglegra en manneskjan. Fígúrurnar beita öllum tiltækum ráðum en ekkert virðist virka. Þær eru eftir allt saman bara manneskjur – og ekkert er sorglegra en manneskjan. Lífið: Harmrænt en hryllilega fyndið ferðalag, ein stór vonbrigði. Þá þarf að meta stöðuna, koma með skapandi lausnir, straumlínulagaðar aðgerðaráætlanir. Og ef ekkert virkar? Koma sér bara þægilega fyrir, anda djúpt niður í þindina, fylla lungun af lofti og anda svo út með hvínandi hljóði – endurtaka þangað til að árangur næst. Þetta reddast allt saman á endanum. Það hlýtur að vera.