Djöflafúgan

Sviðssetning
Íslenski dansflokkurinn

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja svið

Frumsýning
16. október 2008 

Tegund verks
Danssýning

Í október sýnir Íslenski dansflokkurinn fjögur ný verk þar sem hver höfundur skapar dúett fyrir tvo dansara flokksins. Viðfangsefnin eru sígild: Fegurð, þráhyggja, tilfinningar, átök og ástríða. Höfundar eru Gunnlaugur Egilsson. Lára Stefánsdóttir, Peter Anderson og Sveinbjörg Þórhallsdóttir.

„Þeir dönsuðu, djöfluðust, voru dregnir um og málaðir á veggi. Þau stóðu tvö ein eftir og biðu eftir því að veislan tæki enda.“

Danshöfundur
Gunnlaugur Egilsson 

Dansarar
Aðalheiður Halldórsdóttir
Steve Lorenz

Búningar
Harpa Einarsdóttir

Lýsing
Aðalsteinn Stefánsson

Tónlist
Gunnlaugur Egilsson 

Gunnlaugur Egilsson er dansari og danshöfundur sem hefur skapað sér nafn á erlendum vettvangi. Gunnlaugur starfar við Konunglega sænska ballettinn í Stokkhólmi. Hann hefur samið fjölda verka, unnið við gerð tónlistarmyndbanda og komið að nokkrum stuttmyndum sem danshöfundur.