Club Romantica

Heiti verks
Club Romantica

Lengd verks
85 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Þetta byrjar allt með myndaalbúmi sem sviðslistamaðurinn Friðgeir Einarsson keypti á flóamarkaði í Belgíu. Við þekkjum ekki fólkið á myndunum og það er ráðgáta af hverju albúmið var til sölu. Var því stolið? Týndist það? Var því kannski hent? Það eina sem við vitum er að belgísk kona fór í frí til Mallorca fyrir 40 árum, drakk sangría, fór á ströndina, sigldi á hjólabát og tók myndir af sér og vinkonu sinni.

Eftir tíu ára umhugsun hefur Friðgeir loks ákveðið að reyna að hafa uppi á réttmætum eiganda albúmsins og skila því. En þá þarf hann að leggjast í umfangsmikla rannsóknarvinnu, átta sig á tengslum persónanna á myndunum og hugsanlegum örlögum þeirra.

Í Club Romantica kynnir Friðgeir fólkið á myndunum fyrir áhorfendum, segir sögu þess og sviptir hulunni af því hvað varð um þessa belgísku konu. Í leiðinni veltir hann fyrir sér hvað verður um myndaalbúm og minningar okkar þegar við hverfum af sjónarsviðinu. Hver mun segja okkar sögu? Mun einhver muna eftir okkur eftir 40 ár?

Sviðssetning
Leikhópurinn Abendshow og Borgarleikhúsið

Frumsýningardagur
28. febrúar, 2019

Frumsýningarstaður
Borgarleikhúsið

Leikskáld
Friðgeir Einarsson

Leikstjóri
Pétur Ármannsson

Danshöfundur
Ásrún Magnúsdóttir

Tónskáld
Snorri Helgason

Hljóðmynd
Baldvin Þór Magnússon

Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson og Pálmi Jónsson

Búningahönnuður
Brynja Björnsdóttir

Leikmynd
Brynja Björnsdóttir

Leikarar
Friðgeir Einarsson
Snorri Helgason

Söngvari/söngvarar
Snorri Helgason

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.facebook.com/abendshowtheaterclub
www.borgarleikhusid.is