Bónusferðin

Heiti verks
Bónusferðin

Lengd verks
112 mín

Tegund
Útvarpsverk

Um verkið
Leikrit í tveimur hlutum.
Jólabókaflóðið er yfirstaðið og Ragnar hefur verið ráðinn til að sækja óseld eintök af bókinni „Bakað úr súrdeigi“ í helstu Bónusbúðir á landsbyggðinni. Bókaútgáfan vill að hann ljúki verkinu á nokkrum sólarhringum, en ferðaáætlunin fer öll úr skorðum eftir að Ragnar leyfir vinum sínum, Árna og Friðgeiri, að fljóta með sér í sendibílnum. Fyrr en varir er fremur einfalt verkefni orðið að flóknu vandamáli sem teygir anga sína langt út fyrir hringveginn.

Sviðssetning
Útvarpsleikhúsið í samstarfi við Kriðpleir.

Frumsýningardagur
15. september, 2018

Frumsýningarstaður
Rás 1 – RÚV

Leikskáld
Bjarni Jónsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Árni Vilhjálmsson og Friðgeir Einarsson.

Leikstjóri
Bjarni Jónsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Árni Vilhjálmsson og Friðgeir Einarsson.

Tónskáld
Árni Vil

Leikarar
Ragnar Ísleifur Bragason, Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Þór Birgisson, Benedikt Hermann Hermannsson, Helgi Seljan, Jóhann Kristófer Stefánsson og Ari Ísleifur Ragnarsson.

Leikkonur
Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Ragnheiður Skúladóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir.

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.ruv.is/thaettir/utvarpsleikhus