Blótgoðar

Blótgoðar – uppistand um heiðingja
Sviðssetning
Leikhópurinn Svipir og Söguleikhúsið
Sýningarstaður
Landnámssetrið í Borgarnesi 
 
Frumsýningardagur
24. September 2011
 
Um verkið:  Í einleiknum, BLÓTGOÐAR  lifnar hugarheimur íslendinga fyrir kristnitöku við í flutningi leikarans sem bregður sér í líki margra sögufrægra persona, svo sem Snorra Goða, Þorgeirs Ljósvetningagoða, Síðu-Halls, Finnboga Ramma og svo annarra minna þekktra, hverra orðstír lifði ekki eins glatt og má þar nefna Finn hinn draumspaka, þrælinn Skinna, Mjald hinn finnska og Sólveigu Þormóðsdóttur , Þorkelssonar, Þorsteinssonar, Ingólfssonar, Arnarsonar, sem þá þótti fegurst fljóða. Sögusviðið eru Þingvellir þá kristni var lögtekin og leggur Þór út frá þeim orðspöru textum sem við byggjum okkar þekkingu á, svo sem Íslendingabók Ara Fróða en skáldar svo í eyðurnar, sem eru ansi margar. Hver hellti finnan Mjald fullan? Af hverju mistókst norsku leyniskyttunum að myrða Lögsögumanninn? Hvað gerðist undir feldinum? Hvernig gengur hinum nýskírðu að hætta að sjá gamla góða huldufólkið? Það eru tvö ár síðan Þór byrjaði að sanka að sér heimildum um gömlu heiðnina með það að markmiði að skilja betur þessa fornu trú og freista þess að fá botn í það hvort forfeður okkar hafi verið heitir blótmenn eða hvort trú þeirra hafi verið farin að kulna. Niðurstaða hans er á þann veg að trúarlíf hafi verið sprelllifandi og fjörugt fyrir innreið kristninnar hér á landi og mjög litskrúðugt! Höfundur tekur því efnið alvarlega og vonast til að áhorfendur fái sannverðuga tilfinningu fyrir því hvernig trúarheimur landnámsfólksins var í reynd. Þór hefur sér til fulltingis hinn sænska Peter Engkvist. sem er einstaklega fær leikstjóri, og hefur sérhæft sig á sviði þess háttar einleikja, sem hér um ræðir. Nægir þar að nefna, Hamlet, en stand-up, sem sýndur var hér á Listahátíð, og M. Skallagrímsson, sem Bendedikt Erlingsson flutti við opnun Landnámsseturisins, en í þeim verkum báðum var húmorinn alltumlykjandi, þó djúp virðing hafi verið borin fyrir efninu. Leiksýningin er innblásin af sagnamönnum sögualdarinnar sem fóru milli bæja, sögðu frá og skreyttu vel.  Vafalaust hafa þeir notað öll meðul í bókinni til að miðla efninu af krafti og gera stundina ógleymanlega fyrir þá sem á hlýddu. Voru þeir skáld, leikarar eða uppistandarar?
Leikskáld
Þór Tulinius
Leikstjóri
Peter Engkvist
 
Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson
Leikmynd
Beate Stomo
 
Búningahönnuður
Beate Stomo
 
Leikarar
Þór Tulinius
Vefsíða leikhóps / leikhúss: www.landnamssetur.is