Bjarni á Fönix

Sviðsseting
Kómedíuleikhúsið

Sýningarstaðir
Alviðra Dýrafirði
Talisman Suðureyri

Frumsýning
18. september 2010

Tegund verks
Einleikur

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði frumsýnir nýjan Íslenskan einleik. Einleikurinn verður frumsýndur á söguslóðum í Alviðru í Dýrafirði. Skipherrann Bjarni Þorlaugarson á skútunni Fönix háði frækinn bardaga við hátt í 30 Fransmenn um miðja nítjándu öld. Bardaginn stóð yfir í heila fjóra klukkutíma, að vísu tóku menn sér stutta pásu í miðjum átökum og gekk Bjarni óskaddaður af vettvangi. Skömmu síðar fannst sjórekið lík af einum Fransmanni og voru uppi kenningar um að Bjarni hafi orðið hans bani. Mál var dómtekið og þurfti Bjarni þá að spyrja sig þeirrar samviskuspurningar: Drap ég mann eða drap ég ekki mann?

Sagan af Bjarna skipherra á Fönix er sönn vestfirsk hetju- og þroskasaga. Í þessu leikverki skiptast á ástir og átök úr íslenskum raunveruleika. Bjarni á Fönix er kraftmikil sýning sem lætur engan ósnortinn. Um er að ræða einleik úr smiðju Kómedíuleikhússins á Ísafirði.

Höfundar
Ársæll Níelsson
Elfar Logi Hannesson

Leikstjóri
Elfar Logi Hannesson

Leikari í aðalhlutverki
Ársæll Níelsson 

Leikmynd
Marsibil G. Kristjánsdóttir

Búningar
Marsibil G. Kristjánsdóttir