Best í heimi

Sviðssetning
Rauði þráðurinn

Sýningarstaður
Iðnó

Frumsýnt
28. október 2006

Tegund verks
Leiksýning

Best í heimi er háðsádeila á íslenskt samfélag í dag. Gert er grín að þjóðarstolti Íslendinga og varpað ljósi á spaugilegar aðstæður útlendinga við að fóta sig í nýju landi.

Með auknum fjölda innflytjenda á Íslandi eiga sér stað miklar breytingar á okkar litla samfélagi.  Allir þurfa að aðlagast breyttum aðstæðum. “Best í heimi” fjallar um samskipti og árekstra ólíkra menningarheima.

Verkið dregur fram spaugilegu en jafnframt sorglegu og erfiðu hliðar þess að vera útlendingur á Íslandi. Verkið er spunaverk samið af Hávari Sigurjónssyni, Maríu Reyndal og leikhópnum. Stuðst er við reynslu listamannanna, viðtöl við innflytjendur og Íslendinga og sögur sem hópurinn hefur viðað að sér.

Höfundar
Hávar Sigurjónsson
María Reyndal
Leikhópurinn

Leikstjóri
María Reyndal

Leikari í aðalhlutverki
Pierre-Alain Giraud

Leikkonur í aðalhlutverki
Caroline Dalton
Dimitra Drakopoulou
Tuna Metya

Leikmynd
Egill Ingibergsson
Móeiður Helgadóttir

Búningar
Dýrleif Ýr Örlygsdóttir
Margrét Einarsdóttir

Lýsing
Egill Ingibergsson
Móeiður Helgadóttir

Tónlist
Þorkell Heiðarsson

Danshöfundur
Lára Stefánsdóttir