Axlar-Björn

Axlar-Björn

Sviðssetning
Vesturport í samstarfi við Borgarleikhúsið

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Litla svið

Frumsýning
19. janúar 2012

Tegund verks
Leiksýning

Í Axlar-Birni er sögð saga eins kaldrifjaðasta morðingja Íslandssögunnar. Móðir hans var sólgin í mannablóð þegar hún gekk með hann og faðir hans blóðgaði sig reglulega til að svala þorsta eiginkonu sinnar. Því má segja að óhugnaðurinn í eðli Axlar-Björns hafi hafist þegar í móðurkviði.

Axlar-Björn myrti átján manns áður en upp um hann komst. Fyrsta fórnarlambið dysjaði hann í flórnum á Knerri en hinum sökkti hann í Ígultjörn. Axlar-Björn var á endanum tekinn höndum og þau Steinunn, kona hans, dæmd til dauða á Laugarbrekkuþingi árið 1596. Brotið skyldi í Birni hvert bein og þau Steinunn síðan bæði hálshöggvin.

Axlar-Björn rekur öðrum þræði sögu þessa ógnvekjandi morðingja en veltir einnig upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiðir til óhæfuverka.

Höfundur
Björn Hlynur Haraldsson

Leikstjórn
Björn Hlynur Haraldsson

Leikarar
Atli Rafn Sigurðarson
Helgi Björnsson

Leikmynd
Axel Hallkell Jóhannesson

Búningar
Mundi

Lýsing
Kjartan Þórisson

Tónlist
Kjartan Sveinsson

Hljóðmynd
Eiríkur Sigurðsson 

Brúður
Eva Berger

– – –

Björn Hlynur Haraldsson (1974) hefur getið sér gott orð bæði sem höfundur og leikstjóri, hann skrifaði t.a.m. leikritið Dubbeldusch auk þess að skrifa leikgerð Faust og Húsmóðurina ásamt félögum sínum í Vesturporti.

Kjartan Sveinsson (1978) úr Sigur Rós undirstrikar óhugnaðinn með tónlist og hljóðmynd.