Antígóna

Leikritið er talið vera skrifað 422 f.k. og er nú flutt til að heiðra minningu þýðandans, Helga Hálfdanarsonar, sem lést fyrr á árinu.

Höfundur
Sófókles

Íslensk þýðing
Helgi Hálfdanarson

Leikstjórn
Sigurður Skúlason

Hljóðvinnsla
Georg Magnússon

Tónlist
Kristín Bergsdóttir
Erla Axelsdóttir
(nemendur í tónsmíðum í Tónlistardeild Listaháskóla Íslands)

Leikendur
Árni Tryggvason
Erlingur Gíslason
Halldór Gylfason
Jóhann Sigurðarson
Kristján Franklín Magnús
María Heba Þorkelsdóttir
Pétur Einarsson
Sigrún Edda Björnsdóttir
Sólveig Arnarsdóttir
Valur Freyr Einarsson
Þorsteinn Gunnarsson
Þórir Sæmundsson

Aðrir leikendur
Hjörtur Jóhann Jónsson
Olga Sonju Thorarensen
Ólöf Haraldsdóttir
Sigurður Þór Óskarsson
Snorri Engilbertsson
(nemendur á leikarabraut Leiklistardeildar Listaháskóla Íslands)

Bræður Antígónu, þeir Eteókles og Pólíneikes, hafa borist á banaspjótum sem hermenn andstæðra fylkinga í stríði um borgina Þebu.  Móðurbróðir þeirra, Kreon, hefur tekið við völdum í Þebu þegar leikurinn hefst. Hann lætur þau boð út ganga að Eteókles skuli hljóta sæmdarútför en lík Pólíneikesar, sem var í óvinahernum, skuli skilið eftir úti á víðavangi hundum og hrægömmum til ætis.

Antígóna lætur hins vegar ekki segjast og býr bróður sínum hinstu hvílu. Þegar upp kemst um verknaðinn er Antígóna tekin höndum og Kreon fyrirskipar að hún skuli grafin lifandi. Dramb Kreons og stolt hafa skelfilegar afleiðingar í för með sér.

Flutningstími
92 mínútur

Frumflutt
27.desember 2009

image004  Unknown-3  518317A  image012