Á vit..

Tegund verks: Dansverk

Sviðssetning: Samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, GusGus, Hörpu og Listahátíð í Reykjavík

Sýningarstaður og frumsýningardagur: Harpa, 18. maí 2012

Um verkið: Íslenski dansflokkurinn og GusGus bjóða til veislu, í samstarfi við Hörpu og Listahátíð í Reykjavík, þar sem sameinaðir eru kraftar ólíkra listforma og frumsýndar verða stuttmyndir Reynis Lyngdal og Katrínar Hall. Filippía Elísdóttir og Aðalsteinn Stefánsson sjá um umgjörð verksins, leikmynd og búninga. Sameinaður sköpunarkraftur hópsins með dansara flokksins í fararbroddi ásamt nýrri frumsaminni tónlist frá GusGus er uppspretta verksins.
Á vit… býður áhorfendum í ferðalag þar sem dans, tónlist og myndir kalla fram framandi viðbrögð skilningarvitanna. Þetta er óhefðbundið verkefni þar sem nokkrir af fremstu listamönnum Íslands taka höndum saman og leiða okkur inn í veröld – iðandi af lífi og óvæntum uppákomum á vorkvöldi í miðborg Reykjavíkur.

Danshöfundur: Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Emilía Benedikta Gísladóttir, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Þyri Huld Árnadóttir ásamt listrænum stjórnanda Katrínu Hall og æfingastjóra Tinna Grétarsdóttir

Tónskáld: GusGus

Lýsing: Aðalsteinn Stefánsson

Búningahönnuður: Filippía Elísdóttir og Ýr Þrastardóttir

Dansarar:
Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Emilía Benedikta Gísladóttir, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Þyri Huld Árnadóttir

Vefsíða leikhóps / leikhúss:

www.id.is