Tilnefningar til Grímunnar 2026

Mánudaginn 18. maí voru tilnefningar til Grímunnar – Íslensku sviðlistaverðlaunanna tilkynntar í Tjarnarbíó.

Í ár voru 49 sviðsverk skráð af leikhúsum og sviðslistahópum í Grímuna, 5 óperur, 9 dansverk, og 3o leikverk ásamt 10 barnaleikhúsverkum. Af 33 leikverkum eru 26 frumsamin íslensk leikverk eða leikgerðir.

Valnefnd skipuð 12 fulltrúum hefur fjallað um sýningar leikársins. Meðlimir valnefndar eru fagfólk sem sinnir starfi sínu sem einstaklingar og meta framlög út frá eigin sannfæringu. Hún hefur valið hámark 5 einstaklinga, teymi eða verk í hverjum verðlaunaflokki í forvali Grímunnar er hljóta tilnefningu. Í aðalvali velur nefndin sigurvegara í hverjum flokki.

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn kl: 20:15 í Þjóðleikhúsinu þriðjudaginn 26. maí og í beinni útsendingu á RÚV.

Tilnefnt er í 19 verðlaunaflokkum að þessu sinni: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari og leikkona í aðalhlutverki, leikari og leikkona í aukahlutverki, leikmynd, búningar og lýsing ársins, tónlist- og hljóðmynd ársins, söngvari ársins, dans- og sviðshreyfingar, dansari og danshöfundur ársins og barnasýning ársins. Að auki verða Hvatningarverðlaun valnefndar og heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands veitt á verðlaunahátíðinni þann 26. maí. Heiðursverðlaunin eru veitt einstaklingi er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi.

Tilnefningar Gríman 2026

Sýning ársins 2026

Ormstunga – Þjóðleikhúsið

Óresteia – Þjóðleikhúsið

Salka – ástin og dauðinn – Landnámssetrið í Borgarnesi í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Sérstæðan – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

Söngleikurinn Kabarett – Leikhús ókunnuga fólksins í samstarfi við Þjóðleikhúsið

 

Barnasýning ársins 2026

Engan asa Einar Áskell – Daldrandi

Galdrakarlinn í Oz – Borgarleikhúsið

Hreiðrið – Miðnætti í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Innblástur – Leikhópurinn Með ólíkindum í samstarfi við Tjarnarbíó

Lína Langsokkur – Þjóðleikhúsið

 

Leikrit ársins 2026

Ormstunga – Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson

Óresteia – Benedict Andrews

Rómantísk gamanmynd – Sigurður Ámundason, Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko

Salka – ástin og dauðinn – Leikrit eftir Unni Ösp Stefánsdóttur – byggt á skáldsögu eftir Halldór Laxness

Sæmundur Fróði – Þórunn Guðmundsdóttir

 

Hvatningarverðlaun ársins 2026

Barna- og ungmennastarf Borgarleikhússins 

Í öllu barna- og ungmennastarfi Borgarleikhússins er markvisst unnið eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Starfið er afar fjölbreytt og í stöðugri þróun. Það nær meðal annars til fjölmenns leiklistarskóla, barnaþings og mikilvægs starfs með flóttabörnum og hinsegin ungmennum. Árlega er boðið upp á þrjár ókeypis leiksýningar fyrir ólíka aldurshópa skólabarna. Verkfærakista leiklistarinnar er þannig nýtt af miklum metnaði til þroska og valdeflingar nýrra kynslóða.

Dansverkstæðið

Dansverkstæðið vinnur ómetanlegt starf við að efla danslistina og kynna hana fyrir almenningi með fjölbreyttum námskeiðum og uppákomum með það að leiðarljósi að dans sé tjáningarform sem allir ættu að geta tileinkað sér. Til að tryggja jafnt aðgengi óháð efnahag stendur gestum ávallt til boða að greiða miðaverð eftir getu. Með þessu, ásamt því að bjóða almenningi æfingarými, opnar Dansverkstæðið dyr að listforminu og nær til breiðari hóps samfélagsins.

Improv Ísland

Í yfir áratug hefur spunahópurinn Improv Ísland haft mikil áhrif á íslenskar sviðslistir. Á þeim tíma hefur hann fyllt Þjóðleikhúskjallarann af áhorfendum sem mæta aftur og aftur á sýningar þar sem engin tvö kvöld eru eins. Með því að tvinna saman leiklist, tónlist og fersku gríni af óþrjótandi sköpunargleði hefur Improv Ísland unnið dýrmætt frumkvöðlastarf og fest nýtt sviðslistaform varanlega í sessi hérlendis.

Leikhúslistakonur 50+

Frá árinu 2014 hefur hópurinn Leikhúslistakonur 50+ staðið fyrir hátt í fjörutíu viðburðum, allt frá ljóðagjörningum til uppsetninga á nýjum íslenskum leikverkum. Hópurinn, sem samanstendur af breiðum hópi sviðslistakvenna, hefur vakið verðskuldaða athygli á þeim ríkulega mannauði sem leiklistin á í miðaldra og eldri konum. Þetta öfluga starf, unnið af einskærri ástríðu og án opinberra styrkja, hefur auðgað menningarflóruna hressilega undanfarin tólf ár.

Stertabenda

Stertabenda skapar ögrandi, einlæg og fagurlega unnin sviðsverk sem tala skýrt inn í samfélagsumræðuna og miðla hinsegin reynsluheimi. Fyrir sýninguna Skammarþríhyrninginn stóð hópurinn til dæmis fyrir ókeypis leiklistarnámskeiði fyrir hinsegin sviðslistafólk sem tók í kjölfarið þátt í verkinu. Á tímum aukinnar skautunar hefur Stertabenda fundið framsæknar og skapandi leiðir til að fræða, gagnrýna og sameina í lifandi samtali við áhorfendur og samfélagið allt.

 

Leikstjóri ársins 2026

Kolfinna Nikulásdóttir – Hamlet – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Agnes Wild – Lína Langsokkur – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Gísli Örn Garðarson – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Benedict Andrews – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Gréta Kristín Ómarsdóttir – Skammarþríhyrningurinn – Sviðsetning Stertabenda í samstarfi við MurMur Productions og Borgarleikhúsið

 

Leikari í aukahlutverki 2026

Björn Stefánsson – Moulin Rouge! Söngleikur – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Fannar Arnarsson – Skammarþríhyrningurinn – Sviðsetning Stertabenda í samstarfi við MurMur Productions og Borgarleikhúsið

Hilmir Jensson – Galdrakarlinn í Oz – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Kjartan Darri Kristjánsson – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson – Lína Langsokkur – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

 

Leikkona í aukahlutverki 2026

Berglind Alda Ástþórsdóttir – Hamlet – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Margrét Vilhjálmsdóttir – Íbúð 10B – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Ólafía Hrönn Jónsdóttir – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Sólveig Arnarsdóttir – Galdrakarlinn í Oz – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Vigdís Halla Birgisdóttir – Elskan, er ég heima? – Sviðsetning Leikfélag Akureyrar

 

Leikari í aðalhlutverki 2026

Atli Rafn Sigurðsson – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Árni Pétur Guðjónsson – Skammarþríhyrningurinn – Sviðsetning Stertabenda í samstarfi við MurMur Productions og Borgarleikhúsið

Elísabet Skagfjörð – Engan asa Einar Áskell – Sviðsetning Daldrandi

Jakob von Oosterhout – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Kristinn Óli S. Haraldsson – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

 

Leikkona í aðalhlutverki 2026

Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Birta Sólveig Söring Þórisdóttir – Lína Langsokkur – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Ebba Katrín Finnsdóttir – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Nína Dögg Filippusdóttir – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Unnur Ösp Stefánsdóttir – Salka – ástin og dauðinn – Sviðsetning – Landnámssetrið í Borgarnesi

í samstarfi við Þjóðleikhúsið

 

Söngvari ársins 2026

Björk Níelsdóttir – Sæmundur Fróði – Sviðsetning Animato í samstarfi við Tjarnarbíó

Bryndís Guðjónsdóttir – La bohéme – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Óður í samstarfi við Borgarleikhúsið

Jóna G. Kolbrúnardóttir – Carmen – Sviðsetning – Kammeróperan í samstarfi við Tjarnarbíó

Kristinn Óli S. Haraldsson – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Rán Ragnarsdóttir – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

 

Danshöfundur ársins 2026

Aðalheiður Halldórsdóttir – Flóðreka – Sviðsetning Íslenski dansflokkurinn

Rósa Ómarsdóttir – Sérstæðan – Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við MurMur productions og Tjarnarbíó

Sally Cowdin í samstarfi við Anaïs Barthe, Alona Perepelytsia og dansara Ballet Axis – Pointe of Axis – Sviðsetning – Ballet Axis í samstarfi við Tjarnarbíó

 

Dansari ársins 2026

Erna Gunnarsdóttir – Flóðreka – Sviðsetning Íslenski dansflokkurinn

Hiroki Ichinose – Garðurinn – Sviðsetning Íslenski dansflokkurinn

Íris Ásmundar – See instructions – Sviðsetning – Íris Ásmundar, Karitas Lotta Tulinius og Magnús Jóhann Ragnarsson

Jón Sigurður Gunnarsson og Sally Cowdin – Sirkusmolar – Sviðsetning – Hringleikur í samstarfi við Tjarnarbíó

Sally Cowdin – Pointe of Axis – Sviðsetning – Ballet Axis í samstarfi við Tjarnarbíó

 

Dans- og sviðshreyfingar ársins 2026

Ernesto Camilo Valdes og Kolfinna Nikulásdóttir – Hamlet – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Lea Alexandra Gunnarsdóttir, Jökull Smári Jakobsson og Nikulás Hansen Daðason – Innblástur –

Sviðsetning – Leikhópurinn Með ólíkindum í samstarfi við Tjarnarbíó

Juulius Vaiksoo og Leevi Rauhalahti – Mergur – Sviðsetning – Mergur leikhópur í samstarfi við Tjarnarbíó

Liam Steel – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og Sally Cowdin – Söngleikurinn Kabarett – Sviðsetning – Leikhús ókunnuga fólksins í samstarfi við Þjóðleikhúsið

 

Tónlist- og hljóðmynd ársins 2026

Jónsi – Flóðreka – Sviðsetning Íslenski dansflokkurinn

Katrín Lóa Hafsteinsdóttir – Fyrir tónlist í sýningunni Mergur – Sviðsetning – Mergur leikhópur í samstarfi við Tjarnarbíó

Hafsteinn Níelsson og Jóhannes Damian R. Patreksson – fyrir tónlist í sýningunni Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Bára Gísladóttir – fyrir tónlist í sýningunni Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Þórunn Guðmundsdóttir og Hrafnkell Orri Egilsson – fyrir sýninguna Sæmundur Fróði -Sviðsetning – Animato í samstarfi við Tjarnarbíó

 

Lýsing ársins 2026

Jónsi og Isaac Cohen – Flóðreka – Sviðsetning Íslenski dansflokkurinn

Andreu Fàbregas Granes og Owen Hindley – Flækt – Sviðsetning – Viva Holding og MurMur Productions í samstarfi við Tjarnarbíó

Gunnar Hildimar Halldórsson – Galdrakarlinn í Oz – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Ásta Jónína Arnarsdóttir – Innblástur – Sviðsetning – Leikhópurinn Með ólíkindum í samstarfi við Tjarnarbíó

Katerina Blahutova – Sérstæðan – Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

 

Leikmynd ársins 2026

Eva Signý Berger – Galdrakarlinn í Oz – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir – Innblástur – Sviðsetning – Leikhópurinn Með ólíkindum í samstarfi við Tjarnarbíó

Ilmur Stefánsdóttir – Ormstunga – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Elín Hansdóttir – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Rósa Ómarsdóttir, Sean Patrick O’Brian, Valdimar Jóhannsson, Katerina Blahutova &

Owen Hindley – Sérstæðan – Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

 

Búningar ársins 2026

Júlíanna Lára Steingrímsdóttir – Galdrakarlinn í Oz – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Eva Björg Harðardóttir – Lína Langsokkur – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Þórunn María Jónsdóttir – Niflungahringurinn allur – Sviðsetning Borgarleikhúsið

Filippía I. Elísdóttir – Óresteia – Sviðsetning Þjóðleikhúsið

Hulda Kristín Hauksdóttir – Söngleikurinn Kabarett – Sviðsetning – Leikhús ókunnuga fólksins

í samstarfi við Þjóðleikhúsið