Tilnefningahátíð Grímunnar 2024

Tilnefningar til Grímunnar 2024

Í gærkvöldi voru tilnefningar til Grímunnar – Íslensku sviðlistaverðlaunanna tilkynntar í Tjarnarbíó.

Í ár voru 61 sviðsverk skráð af leikhúsum og sviðslistahópum í Grímuna, 5 óperur, 9 dansverk, 1 útvarpsleikverk og 33 leikverk ásamt 13 barnaleikhúsverkum þar af 1 dansverk og 2 óperur.

Valnefnd skipuð 9 fulltrúum hefur fjallað um sýningar leikársins. Meðlimir valnefndar eru fagfólk sem sinnir starfi sínu sem einstaklingar og meta framlög út frá eigin sannfæringu. Hún hefur valið 5 einstaklinga, teymi eða verk í hverjum verðlaunaflokki í forvali Grímunnar er hljóta tilnefningu. Í aðalvali velur nefndin sigurvegara í hverjum flokki og verða verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu að kvöldi miðvikudagsins 29. maí nk og í beinni útsendingu á RÚV.

Tilnefnt er í 18 verðlaunaflokkum að þessu sinni: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari og leikkona í aðalhlutverki, leikari og leikkona í aukahlutverki, leikmynd, búningar og lýsing ársins, tónlist ársins, hljóðmynd ársins, söngvari ársins, dans- og sviðshreyfingar, dansari og danshöfundur ársins og barnasýning ársins. Að auki verða verðlaun fyrir Sproti ársins sem hóf göngu sína árið 2012, og heitir nú Hvatningarverðlaun valnefndar, og heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands veitt á verðlaunahátíðinni þann 29. maí nk. Heiðursverðlaunin eru veitt einstaklingi er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi.

Tilnefningar Gríman 2024

Sýning ársins 2024

Félagsskapur með sjálfum – Sviðsetning – Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó

Fúsi – aldur og fyrri störf – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra

Molta – Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn

Saknaðarilmur – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Stroke – Sviðsetning –  Trigger warning í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

Leikrit ársins 2024

Félagsskapur með sjálfum mér eftir Gunnar Smára Jóhannesson

Verkið eftir Jón Gnarr

Með Guð í vasanum eftir Maríu Reyndal

Lúna eftir Tyrfing Tyrfingsson

Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur

Hvatningarverðlaun valnefndar 2024 fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum

Fúsi – aldur og fyrri störf

Einstök nýbreytni í leikhúsi þar sem fatlaður maður segir sögu sína með leiklistina, sem hann hefur helgað líf sitt, að vopni. Fúsi er verðugur fulltrúi listamanna sem eru án landamæra og hefur hann sett líf þeirra og list í kastljósið með sýningunni. Heiðurinn er bæði Fúsa sjálfs og leikstjórans Agnars Jóns, en saman feta þeir óhefðbundna leið til að segja brothætta sögu Fúsa á áhrifaríkan og einlægan hátt.

House of Revolution

Áríðandi og löngu tímabær vettvangur fyrir listamenn af jaðri íslensks samfélags, sem til þessa hafa haft lítinn sem engan aðgang að leikhúsunum. Að frumkvæði R.E.C. Arts hafa þau í fjórgang fyllt Þjóðleikhússkjallarann, af fólki, sameiningaranda og röddum fólks sem hér fá að segja sínar sögur og gera tilraunir með sviðslistaformið. Hér er á ferðinni bæði mikilsverð, gagnkvæm inngilding og von um litríka, fjölradda framtíð á sviðum landsins.

Stefan Sand tónskáld og kórstjóri

Stefan hefur í sínu frumkvöðlastarfi einbeitt sér að því að ná til nýrra áheyrenda. Einstaklega vönduð sviðsetning á verkinu Look at the Music er gott dæmi um það. Þar upphefur hann döff ljóðlist, semur út frá henni tilkomumikið kórverk sem bæði er raddsungið og táknað og brúar þar með heima heyrandi og döff fólks. Verkið teygir sig út fyrir skilning tungumálanna og inn á svið bæði tónrænnar og sjónrænnar upplifunar svo að öll fái notið.

Stroke

Nýjung í heimildaleikhúsi þar sem myndefni og hljóðupptökur, í bland við hefðbundna trúðatækni, eru nýtt á áhrifamikinn hátt til að segja frá reynslu leikkonunnar Virginiu Gillard og lífi eftir heilablæðingu. Með óvenju mikilli berskjöldun tekst höfundum að gera því skil með list trúðsins Cookie, alteregoi leikkonunnar, hvernig líf okkar allra getur tekið óvænta stefnu í kjölfar sársaukafullra atburða sem enginn fær ráðið við. Sviðsverk sem ber vitni um djörfung í nálgun á viðkvæmu viðfangsefni.

Þórunn Guðmundsdóttir tónskáld

Þórunn hefur undanfarna áratugi unnið ómetanlegt brautryðjandastarf sem óperutónskáld, en hún hefur af einstakri ástríðu og metnaði frumsamið fjölda ópera og söngleikja ásamt librettóum. Einnig hefur hún verið órög að taka fjárhagslega áhættu með því að framleiða sjálf sýningar á þessum frumfluttu óperum, án teljandi utanaðkomandi styrkja. Ekkert tónskáld á landinu hefur hin síðari ár, verið svo afkastamikið í að frumsemja og sviðsetja óperur og eins og Þórunn.

Barnasýning ársins 2024

Fíasól gefst aldrei upp – leikgerð Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur byggð á verkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Frost Sviðsetning: Þjóðleikhúsið

Hollvættir á heiði eftir Þór Túliníus – Sviðsetning – Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Sláturhúsið

Kan(l)ínudans eftir Leevi Mettinen og Sóleyju Ólafsdóttur – Sviðsetning – Leevi Mettinen og Sóley Ólafsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó og Unga festival

Ævintýraóperan Hans og Gréta – Sviðsetning – Kammeróperan í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikstjóri ársins 2024

Agnar Jón Egilsson – Fúsi – aldur og fyrri störf – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra

Björn Thors – Saknaðarilmur – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

María Reyndal – Með Guð í vasanum – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Stefán Jónsson – Lúna – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Tómas Helgi Baldursson – Félagsskapur með sjálfum mér – Sviðsetning – Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikkona ársins 2024 í aðalhlutverki

Ebba Katrín Finnsdóttir – Orð gegn orði – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Ilmur Kristjánsdóttir – Ekki málið – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Katla Margrét Þorgeirsdóttir – Með Guð í vasanum – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Unnur Ösp Stefánsdóttir – Saknaðarilmur – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Virginia Gillard – Stroke – Sviðsetning – Trigger warning í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

Leikari ársins 2024 í aðalhlutverki

Björn Thors – Ekki málið – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Gunnar Smári Jóhannesson – Félagsskapur með sjálfum mér – Sviðsetning – Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó

Hilmir Snær Guðnason – Lúna – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Kjartan Darri Kristjánsson – Frost – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Sigurður Þór Óskarsson – Deleríum Búbónis – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Leikkona ársins 2024 í aukahlutverki

Kristbjörg Kjeld – Með Guð í vasanum – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Sólveig Arnarsdóttir – Með Guð í vasanum – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Vigdís Halla Birgisdóttir – Hollvættir á heiði – Sviðsetning – Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Sláturhúsið

Vigdís Hrefna Pálsdóttir – Mútta Courage og börnin – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Þórunn Arna Kristjánsdóttir – X – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Leikari ársins 2024 í aukahlutverki

Agnar Jón Egilsson – Fúsi – aldur og fyrri störf – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra

Atli Rafn Sigurðarson – Mútta Courage og börnin – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Guðjón Davíð Karlsson – Frost – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Sverrir Þór Sverrisson – And Björk, of course…  – Sviðsetning –  Leikfélag Akureyrar (Menningarfélag Akureyrar)

Þröstur Leó Gunnarsson – Ást Fedru – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Dansari ársins 2024

Elín Signý W. Ragnarsdóttir – The Simple Act of Letting go – Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Emilía Benedikta Gísladóttir – The Simple Act of Letting go – Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Erna Gunnarsdóttir – The Simple Act of Letting go –  Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Inga Maren Rúnarsdóttir – Árstíðirnar – Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur

Ólöf Ingólfsdóttir – Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók – Sviðsetning – Alltaf nóg slf í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival

Söngvari ársins 2024

Áslákur Ingvarsson – Póst-Jón – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Óður í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Eggert Reginn Kjartansson  – Ævintýraóperan Hans og Gréta – Sviðsetning – Kammeróperan í samstarfi við Tjarnarbíó

Heiða Árnadóttir – Mörsugur – Sviðsetning – Þrjátíu fingurgómar í samstarfi við Óperudaga

Hildur Vala Baldursdóttir – Frost – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Rán Ragnarsdóttir – Eitruð lítil pilla – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Leikmynd ársins 2024

Filippía I. Elísdóttir – Ást Fedru – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Eva Signý Berger – Fíasól gefst aldrei upp – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Guðný Hrund Sigurðardóttir, Hákon Pálsson og Rósa Ómarsdóttir – Molta – Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn

Elín Hansdóttir – Saknaðarilmur – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Júlíanna Lára Steingrímsdóttir – Vaðlaheiðargöng – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Verkfræðingar í samstarfi við MurMur productions og Borgarleikhúsið

Búningar ársins 2024

Brynja Björnsdóttir – And Björk, of course… – Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar (Menningarfélag Akureyrar)

Filippía I. Elísdóttir  – Ást Fedru – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Stefanía Adolfsdóttir – Deleríum Búbónis – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Júlíanna Steingrímsdóttir – Fíasól gefst aldrei upp – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Filippía I. Elísdóttir – Saknaðarilmur –  Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Lýsing ársins 2024

Katerina Blahutova – Árstíðirnar – Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur

Ásta Jónína Arnardóttir – Ást Fedru – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Ásta Jónína Arnardóttir – Edda – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Ólafur Ágúst Stefánsson – Piparfólkið – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn DÍÓ í samstarfi við MurMur productions

Björn Bergsteinn Guðmundsson – Saknaðarilmur – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Tónlist ársins 2024

Egill Andrason og Salka Valsdóttir – Edda – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Nicolai Johansen – Molta – Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn

Valgeir Sigurðsson og Helgi Hrafn Jónsson – Mútta Courage og börnin – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir – Mörsugur – Sviðsetning – Þrjátíu fingurgómar í samstarfi við Óperudaga

Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson – Saknaðarilmur – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Hljóðmynd ársins 2024

Kristján Sigmundur Einarsson – Ást Fedru – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Ronja Jóhannsdóttir – Kannibalen – Sviðsetning – Spotlight í samstarfi við Tjarnarbíó

Ísidór Jökull Bjarnason – Lúna – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Friðrik Margrétar- Guðmundsson – SUND – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Blautir búkar í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

Þorbjörn Steingrímsson – X – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Danshöfundur ársins 2024

Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir – Árstíðirnar – Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur

Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt – Fabulation – Sviðsetning – Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival

Rósa Ómarsdóttir – Molta – Sviðsetninga – Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn

Ólöf Ingólfsdóttir – Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók – Sviðsetning – Alltaf nóg slf í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival

Tom Weinberger – The Simple Act of Letting go – Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Dans- og sviðshreyfingar ársins 2024

Seiðr og Ernesto Camilo Aldazábal Valdés – Ást Fedru – Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir – Deleríum Búbónis – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Valgerður Rúnarsdóttir – Fíasól gefst aldrei upp – Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Aðalbjörg Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir – Piparfólkið – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn DÍÓ í samstarfi við MurMur productions

Andrean Sigurgeirsson í samstarfi við við Birni Jón Sigurðsson, Ernu Guðrúnu Fritzdóttur, Eygló Hilmarsdóttur, Kjartan Darra Kristjánsson og Þóreyju Birgisdóttur – SUND – Sviðsetning – Sviðslistahópurinn Blautir búkar í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó