Horft frá brúnni

Heiti verks
Horft frá brúnni

Lengd verks
1 klst. 45 mín.

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
– Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar, um forboðnar ástir, svik og frelsisþrána –

Horft frá brúnni er eitt magnaðasta leikrit 20. aldarinnar. Áhrifamikil saga um örlög alþýðufólks í hafnarhverfi í New York, verk um forboðnar ástir, svik og leitina að frelsi í landi tækifæranna.

Hafnarverkamaðurinn Eddie Carbone og Beatrice eiginkona hans hafa gengið Katrínu, systurdóttur Beatrice, í foreldrastað. Fjölskyldan skýtur skjólshúsi yfir tvo unga menn frá Sikiley, ólöglega innflytjendur, og Katrín verður fljótt ástfangin af yngri manninum. Eddie hefur ávallt lagt sig fram um að vernda fósturdóttur sína og tekur þá afdrifaríku ákvörðun að skilja elskendurna ungu að.

Leikstjóri sýningarinnar, Stefan Metz, hefur starfað í virtum leikhúsum víða um Evrópu en nýverið setti hann upp rómaða sýningu á Eldrauninni eftir Arthur Miller hér í Þjóðleikhúsinu.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
30. september, 2016

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið

Leikstjóri
Stefan Metz

Hljóðmynd
Elvar Geir Sævarsson

Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson

Búningahönnuður
Sean Mackaoui

Leikmynd
Sean Mackaoui

Leikarar
Arnar Jónsson, Baldur Trausti Hreinsson, Baltasar Breki Samper, Hallgrímur Ólafsson, Hilmir Snær Guðnason, Snorri Engilbertsson, Stefán Hallur Stefánsson

Leikkonur
Harpa Arnardóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is