Lóaboratoríum

Heiti verks
Lóaboratoríum

Lengd verks
1.15

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Lóaboratoríum er samstarfsverkefni Sokkabandsins og Borgarleikhússins. Fjórar mis-starfhæfar konur í tveimur íbúðum þurfa að þola hverja aðra í ótilgreindan tíma. Tvær þeirra eru systur en hinar mæðgur. Íbúðirnar eru í hverfi í Reykjavík. Kannski eru þær staddar við holt, gerði, götu, fell, stíg eða hvarf, það skiptir ekki máli. Konunum er alveg sama. Þær munu hvort eð er aldrei læra að hegða sér á viðeigandi hátt. Lóaboratoríum er nýtt íslenskt leikverk eftir höfund samnefndra myndasagna. Ekki láta hurðafjöldann á sviðinu blekkja þig, þetta er ekki farsi heldur kjötfars. Þú veist ekki alveg hvaðan það kemur en með smá soðnu káli og smjöri verður það mjög næs.

Sokkabandið hefur getið sér gott orð á undanförnum árum með uppsetningu kraftmikilla og nýstárlegra íslenskra verka t.d. söngleiksins Hér og nú sem boðið var á leiklistarhátíðina í Tampere í Finnlandi og Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur. Í þessu nýja verki eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur verður leitast við að afbyggja staðalímynd kvenna á grátbroslegan og hjartnæman hátt.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er myndlistarmaður, teiknari, tónlistarkona og rithöfundur. Hún hefur gefið út skopmyndabækur undir nafninu Lóaboratoríum þar sem hún skoðar samtímann og hversdagsleikann með beinskeittum húmor sínum. Leikverkið Lóaboratoríum er byggt á teiknimyndasögunum og er fyrsta leikverk Lóu.

Frumsýningardagur
26. janúar, 2018

Frumsýningarstaður
Borgarleikhúsið

Leikskáld
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Leikstjóri
Kolfinna Nikulásdóttir

Danshöfundur
Ásrún Magnúsdóttir

Tónskáld
Árni Rúnar Hlöðversson

Hljóðmynd
Árni Rúnar Hlöðversson

Lýsing
Valdimar Jóhannsson

Búningahönnuður
Sigríður Sunna Reynisdóttir

Leikmynd
Sigríður Sunna Reynisdóttir

Leikkonur
Arndís Hrönn Egilsdóttir
Elma Lísa Gunnarsdóttir
María Heba Þorkelsdóttir
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir