Pizzasendillinn

Pizzasendillinn

Sviðssetning
Fátæka leikhúsið

Sýningarstaður
Faktorý

Frumsýning
17. september 2010

Tegund verks
Leiksýning

Í verkinu hittum við fyrir fjölskyldu sem býr á Melhaga í Reykjavík. Líf þeirra kemst í uppnám þegar pizzasendill nokkur hringir á bjöllunni og vill koma einni átján tommu á tilboði til skila. Enginn í húsinu vill kannast við að hafa pantað þessa pizzu, enda kaupa þau aldrei neitt á tilboði. Pizzasendillinn gefst þó ekki upp og ætlar að koma pizzunni til skila, en flækist þá með óvæntum hætti inn í líf fólksins við Melhaga, sem er svo sannarlega ekki allt þar sem það er séð.

Elísabet hefur verið afkastamikið skáld s.l. tvo áratugi, allt frá því hún gaf út ljóðabókina, Dans í lokuðu herbergi. Síðan þá hefur hún einnig skrifað skáldsögur og leikrit. Þ.á.m. Heilræði lásasmiðsins, Íslands þúsund tár, Galdrabók Ellu Stínu, og Eldhestur á ís.

Pizzasendilinn ritaði hún árið 1997 fyrir leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins. Verkið vann ekki til verðlauna og hafði síðan ekki verið snert þar til leikstjóri verksins, Heiðar Sumarliðason, fann það fyrir tilviljun uppi í hillu á heimili Elísabetar og blés af því rykið. Heiðar og Elísabet útskrifuðust bæði úr leiklistarfræði og framkvæmd frá Lhí árið 2008.

EJHöfundur
Elísabet Jökulsdóttir

Leikstjórn
Heiðar Sumarliðason

Leikari í aðalhlutverki
Magnús Guðmundsson

Leikkonur í aðalhlutverkum
Saga Garðarsdóttir
Þóra Karítas Árnadóttir

Leikari í aukahlutverki
Hjörtur Jóhann Jónsson

– – – – – –

Hér má horfa á upptöku af sýningunni á netinu:

Pizzasendillinn – fyrsti hluti

Pizzasendillinn – annar hluti

Pizzasendillinn – þriðji hluti

– – – – – –

Heiðar Sumarliðason hefur áður leikstýrt verkunum Heteróhetjur: Með fullri virðingu fyrir Ashley Cole, Rándýr og Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar. Hann er einnig höfundur verkins Rautt brennur fyrir sem sýnt var í Borgarleikhúsinu á seinasta leikári.

Þóra Karítas Árnadóttir leikur mömmuna, en Þóra hefur m.a. leikið í Engisprettunum, Hart í bak, Fool for Love og sjónvarpsþáttunum Ástríður.

Magnús Guðmundsson fer með hlutverk pabbans. Hann hefur m.a. leikið í Fool for Love, Fólkinu í blokkinni, Rándýr og Bólu-Hjálmari.

Saga Garðarsdóttir leikur dótturina. Saga er á 3. ári í leiklistardeild Lhí og hefur að undanförnu getið sér gott orð sem partur af uppistandshópnum Upp mín sál.

Hjörtur Jóhann Jónsson leikur pizzasendilinn. Hann er einnig á 3. ári í leiklistardeild Lhí og er þetta þriðja verkið sem hann leikur í undir leikstjórn Heiðars.