HEIÐURSVERÐLAUN Leiklistarsambands Íslands árið 2006 hlaut Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu menningar og lista. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Vigdísi verðlaunin við dynjandi lófatak áhorfenda í Borgarleikhúsinu sem risu úr sætum og ætluðu aldrei að hætta að klappa fyrir leikhússtjóranum fyrrverandi.
Ásamt því að færa Vigdísi þakkir frá þjóðinni fyrir stórkostlegt framlag hennar til menningar og lista hafði Ólafur Ragnar það á orði að lófatakinu loknu að ljóst væri að leikhúsheimurinn á Íslandi sem og þjóðin öll bæru hlýjar tilfinningar til Frú Vigdísar sem hann sagði að jafnvel mætti líkja við ást.
< Fyrri | Næsta > |
---|