Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Um Grímuna
  • Leikárið 2011-12
  • Gagnasafn
  • Um Leiklistarsambandið
  • Skráning sýninga
  • Theatre in Iceland

Samstarfsaðilar

stod2_01

sagafilm_01

Þjóðleikhúsið
Borgarleikhúsið
Leikfélag Akureyrar
Íslenska óperan
Íslenski dansflokkurinn
Sjálfstæðu leikhúsin
Félag íslenskra leikara
Félag leikskálda og handritshöfunda
Félag tæknifólks í rafiðnaði
Útvarpsleikhúsið
Sjónvarpið

Listaháskóli Íslands

leikhus.is

Forsíða Fréttir Leiklistardagar 2007

Leiklistardagar 2007

cialis generikacialis professional
argaiv1061

Share/Save/Bookmark

Image LÍFIÐ er leikhús - Leikhús er lífið! Leiklistardagar 2007 verða haldnir 23. - 27. mars. Leikhús og sviðslistahópar munu bjóða uppá viðburði tengda leiklistinni t.d. umræður að sýningum loknum og ferðir að tjaldabaki. Hátíðinni lýkur með leiklistarþingi á alþjóða leiklistardeginum. Yfirskrift þingsins er Innrás/Útrás og munu fjórir frummælendur halda erindi, þar af tveir erlendir. Þingið verður haldið í Leikhúskjallaranum og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.



LEIKLISTARÞING 2007 - INNRÁS/ÚTRÁS

Fundarstjóri
Steinunn Knútsdóttir, leiklistarráðunautur Leikfélags Reykjavíkur

Dagskrá Leiklistarþings þriðjudaginn 27. mars

19.00
Safnast saman í Leikhúskjallaranum, Þjóðleikhúsinu.
Léttar veitingar.

19.30
ÞINGSETNING
Viðar Eggertsson, formaður Leiklistarsambands Íslands

FRAMSÖGUERINDI I
Spilt Cargo, Made for Export (Fljótandi verðmæti, til útflutnings)
Richard Gough, stofnandi Perfomance Studies international

FRAMSÖGUERINDI II
Bara sápukúla?
Katrín Hall, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins

Fundarhlé.
Léttar veitingar.

FRAMSÖGUERINDI III
Imported discovery - Programme planning for an international theatre festival
(Innflutt uppgötvun - Skipulagning alþjóðlegrar leiklistarhátíðar)
Elena Krüskemper, listrænn stjórnandi LÓKAL

FRAMSÖGUERINDI IV
Að montrassast í útlöndum
Ingvar E. Sigurðsson, leikari

Umræður

22.00
Þingi slitið


Nánar um frummælendur

Richard Gough býr í Wales í Bretlandi. Hann hefur verið mikill áhugamaður um rannsóknir og menntun innan sviðslista og mismunandi sýn heimsins á listina. Hann hefur staðið í forsvari fyrir sviðlistamiðstöðina (CPR) í Aberystwyth um langt árabil en hún stendur fyrir öflugum rannsóknum, námskeiðum og viðburðum, opnum fyrir sviðslistamönnum á alþjóðavísu. Hann hefur verið ritstjóri fjölda bóka og tímarita um sviðslistir og staðið fyrir útgáfu tímaritisins Performance Research sem kemur út ársfjórðungslega í Bretlandi, en vinnur nú að bók um Meyerholdt og Kantor. Hann er einnig stofnandi alþjóðlegra samtaka um sviðslistamenntun (Perfomance Studies international). Richard hefur mikinn áhuga á að skoða samband lista og lystar (matar) í gegnum tíðina, en hann hefur á síðustu árum unnið að leiklistagjörningum og innsetningum byggða á hugmyndinni um Síðustu kvödmáltíðina. Þessir gjörningar hafa ferðast víða um heim en hann stefnir að því að skrifa bók um samband matar og lista í gegnum 20.öldina. En CPR, sviðslitamiðstöðin, í Wales er hans vettvangur og öflugt starf hans þar nær til sviðslistamann um allan heim.

Katrín Hall hefur verið listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins frá 1996. Á þeim tíma hefur flokkurinn sýnt verk eftir marga af þekktustu danshöfundum Evrópu. Hún hefur auk þess beitt sér fyrir því að koma íslenskum danshöfundum á framfæri. Katrín hefur skapað flokknum sérstöðu og sterkan prófíl sem nútímadansflokkur í háum gæðaflokki. Undir hennar stjórn hefur ÍD ferðast víða og sýnt í borgum eins og Avignon, Prag, Bologna, Vilnius, Bergen, Helsinki, Ottowa, Toronto, Linz, Salisbury, Ludwigshafen og Saarlois.

Elena Krüskemper er listrænn stjórnandi LÓKAL, sem er ný íslensk alþjóðleg leiklistarhátíð og verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík að ári. Hún hefur verið listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hinnar rómuðu leiklistarhátíðar í Bonn, Biennale Bonn, sem vakið hefur athygli fyrir frumlega nálgun. Hátíðin hefur síðustu ár verið helguð því athyglisverðasta í sviðslistum í einni borg eða landi hverju sinni. Elena hefur unnið við stefnumótun leiklistar í fjölda ára, bæði í einstaka leikhúsum eins og Schaubühne í Berlín og Borgarleikhúsinu í Bonn, en einnig hefur hún unnið fyrir Köln að starfi með sjálfsæðum leikhúsum.

Ingvar E. Sigurðsson hefur um árabil verið einn virtasti leikari þjóðarinnar og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir leik sinn á leiksviði og í kvikmyndum. Lengst af hefur hann helgað Þjóðleikhúsinu krafta sína, en einnig leikið í Borgarleikhúsinu og með sjálfstæðum leikhópum. Síðustu misserinn hefur hann einkum starfað með Vesturporti og verið þáttakandi í útrás leikhópsins sem og að byggja upp eigin feril erlendis í kvikmyndum og á leiksviði.

< Fyrri   Næsta >
Gríman - Íslensku sviðslistaverðlaunin   |   Tjarnarbíó   |   Tjarnargötu 12   |   101 Reykjavík   |   griman@griman.is

©2006-2011 Hringbrot