LEIKLISTIN á Íslandi blómstrar þrátt fyrir þrengingar og áhorfendur á öllum aldri halda áfram að flykkjast í leikhúsið til að upplifa og njóta. Sumir fara á sýningar til að hvíla sig á raunveruleikanum eina kvöldstund. Margir þurftu einmitt á því að halda í vetur og þá var leikhúsið rétti staðurinn. Sjöunda Grímuhátíðin var haldin í Borgarleikhúsinu þann 16. júní og í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Um 45% þjóðarinnar horfðu á útsendinguna heima í stofu.
HEIÐURSVERÐLAUN Leiklistarsambands Íslands árið 2009 hlýtur Helgi Tómasson, dansari, danshöfundur og listdansstjóri San Francisco-ballettsins fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu danslistar á heimsvísu. Afhending heiðursverðlauna er ávallt hápunktur Grímuhátíðanna, en var með sérlega glæsilegum hætti á hátíðinni þann 16. júní. Afhendingin hófst með því að dansarar Íslenska dansflokksins fluttu brot úr dansverkinu Svaninum.
FRAMÚRSKARANDI sviðslistamenn eru handhafar Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2009. Grímuverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu og í beinni útsendingu Sjónvarpsins þann 16. júní 2009. Alls voru veitt verðlaun í 17 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands, sem einn helsti listamaður þjóðarinnar, Helgi Tómasson hlaut.
TILNEFNINGAR til Grímuverðlauna 2009 voru kunngjörðar í huggulegu síðdegisboði á stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 29. maí. Þeir listamenn sem hlutu tilnefningar tóku á móti viðurkenningum úr hendi forseta Íslands og svo var boðið uppá kaffi, kleinur og kanilsnúða. Fimm sýningar hlutu tilnefningar sem sýning ársins 2009; Dauðasyndirnar, Húmanímal, Steinar í djúpinu, Utan gátta og Þú ert hér.