Efnisyfirlit

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Um Grímuna
  • Leikárið 2011-12
  • Gagnasafn
  • Um Leiklistarsambandið
  • Skráning sýninga
  • Theatre in Iceland

Samstarfsaðilar

stod2_01

sagafilm_01

Þjóðleikhúsið
Borgarleikhúsið
Leikfélag Akureyrar
Íslenska óperan
Íslenski dansflokkurinn
Sjálfstæðu leikhúsin
Félag íslenskra leikara
Félag leikskálda og handritshöfunda
Félag tæknifólks í rafiðnaði
Útvarpsleikhúsið
Sjónvarpið

Listaháskóli Íslands

leikhus.is

Forsíða

Sviðslistaveturinn 2011 – 2012

Share/Save/Bookmark

Tugir sviðsverka verða á fjölunum í vetur af öllum stærðum og gerðum.  Hér á vefsíðu Grímunnar finnur þú upplýsingar um öll þau sviðsverk sem tilnefnd eru til verðlauna í vetur.  Helstu sýningarstaðir á höfuðborgarsvæðinu eru Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Tjarnarbíó, Norðurpóllinn ,Gamla Bíó og Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði.  Á Akureyri heldur Leikfélag Akureyrar úti sýningum í Samkomuhúsinu og Landnámsetrið býður upp á sýningar í Borgarnesi. Auk þess sýna sjálfstæðir sviðslistahópar verk víða um land, í skólum og ýmsum samkomuhúsum og má þar nefna Komedíuleikhúsið frá Ísafirði og Möguleikhúsið.  Frekari upplýsingar um sjálfstæða hópa er að finna á heimasíðu Sjálfstæðu leikhúsanna.

 

Handhafar Grímuverðlauna 2011

Share/Save/Bookmark

UPPSKERUHÁTÍÐ sviðslistanna á Íslandi árið 2011, Gríman, var haldin fimmtudagskvöldið 16. júní í Borgarleikhúsinu og í beinni útsendingu á Stöð 2. Á hátíðinni voru Grímuverðlaunin veitt í níunda sinn í alls 16 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands, sem eitt fremsta leikskáld þjóðarinnar um árabil, Oddur Björnsson, hlaut.

Sýning ársins 2011 var valin leiksýningin Lér konungur eftir William Shakespeare í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut alls 6 Grímuverðlaun en hún var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins annan jóladag, þann 26. desember 2010. Ástralski leikstjórinn Benedict Andrews hlaut verðlaunin fyrir leikstjórn og Arnar Jónsson var valinn leikari ársins í titilhlutverkinu. Leikararnir Atli Rafn Sigurðarson og Margrét Vilhjálmsdóttir hlutu Grímuna fyrir hlutverk sín í sýningunni og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir hlaut Grímuna fyrir tónlistina í sýningunni.

Ler_konungur_copy

SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Lér konungur eftir William Shakespeare í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Benedict Andrews.

Folki_i_kjallaranumLEIKSKÁLD ÁRSINS
Auður Jónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson fyrir leikverkið Fólkið í kjallaranum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.

Ler_konungur_4LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Benedict Andrews fyrir leikstjórn í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Ler_konungur_2LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Arnar Jónsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Unnur_OspLEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Elsku barni í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.

Ler_konugur_7LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Atli Rafn Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Ler_konungur_3LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Stryhri_PeturLEIKMYND ÁRSINS
Halla Gunnarsdóttir fyrir leikmynd í leiksýningunni Strýhærða Pétri í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.

Ofviri_2BÚNINGAR ÁRSINS
Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.

Ofviri_1LÝSING ÁRSINS
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.

Ler_konungur_6TÓNLIST/HLJÓÐMYND ÁRSINS
Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir fyrir tónlist í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Olafur_KjartanSÖNGVARI ÁRSINS
Ólafur Kjartan Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í óperunni Rigoletto í sviðssetningu Íslensku óperunnar.

Gunnlaugur_EgilssonDANSARI ÁRSINS
Gunnlaugur Egilsson fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið.

eyjaskegg1DANSHÖFUNDUR ÁRSINS
Valgerður Rúnarsdóttir og hópurinn fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Eyjaskeggi í sviðssetningu Reykjavik Dance Festival.

GilitruttBARNASÝNING ÁRSINS
Brúðuleiksýningin Gilitrutt eftir Bernd Ogrodnik í samvinnu við Benedikt Erlingsson í sviðssetningu Brúðuheima. Leikstjórn annaðist Benedikt Erlingsson.

djupid465ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson. Leikari Ingvar E. Sigurðsson. Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson. Hljóðsetning Einar Sigurðsson. Leikstjórn annaðist Jón Atli Jónasson.

Oddur_Bjornsson

HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS
Leikskáldið Oddur Björnsson fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu leiklistar.

Screen_shot_2011-06-16_at_10.50.47_PMÁHORFENDAVERÐLAUNIN

Leiksýningin Nei, ráðherra! í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins. Sýningin hlaut flest atkvæði í símakosningu um sýningu ársins að mati áhorfenda.

Þær fjórar sýningar sem einnig komu til greina voru Gói og Eldfærin í sviðssetningu Baunagrassins og Borgarleikhússins, Húsmóðirin í sviðssetningu Vesturports og Borgarleikússins, Rocky Horror í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar og Strýhærði Pétur í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.

   

Fjöldi sviðsstjarna kemur fram á Grímuhátíðinni í Borgarleikhúsinu

Share/Save/Bookmark

34245_406647961314_557721314_4886370_1028367_nGRÍMUHÁTÍÐIN 2011 verður haldin í stóra sal Borgarleikhússins fimmtudaginn 16. júní. Hátíðin hefst með fordrykk í forsal leikhússins kl. 18.30 en bein útsending hefst stundvíslega kl. 19.30 á Stöð 2. Þeir sem hafa tryggt sér aðgöngumiða á hátíðina mega eiga von á skemmtilegu og glæsilegu kvöldi að vanda, en hátíðin er nú haldin í níunda sinn. 

Gunni_og_Katla

Aðalkynnar hátíðarinnar í ár verða leikararnir ljúfu Gunnar Hansson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir, en í gegnum árin hafa kynnar Grímunnar ávallt vakið athygli fyrir líflega og uppátækjasama framkomu.

Leikarar1Ásamt þeim Gunnari og Kötlu kemur fjöldi sviðslistastjarna fram á hátíðinni. Einnig verða á boðsstólnum fjörug skemmtiatriði, m.a. frá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Sjálfstæðu leikhúsunum, Íslensku óperunni og Íslenska dansflokknum.

Leikarar2

Meðal stjarnanna sem afhenda verðlaun á hátíðinni má nefna leikarana Selmu Björnsdóttur, Egil Ólafsson, Eddu Björgvins, Víking Kristjánsson, Ingvar E. Sigurðsson, Theódór Júlíusson, Maríu Hebu, Magnús Ólafs, Esther Talíu, Þórunni Ernu Clausen, Vigni Rafni Valþórs, Þórunni Örnu Kristjáns ofl.

36853_406647236314_557721314_4886320_1521007_n

Þá munu dansarar Íslenska dansflokksins Katrín Ingvadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir stíga á stokk og afhenda verðlaun sem og leikhússtjórar stóru leikhúsanna tveggja, Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri og Magnús Geir Þórðarson borgarleikhússtjóri.

Grman_2008

Grímuhátíðin var fyrst haldin árið 2003 en það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hefur veg og vanda að Grímuverðlaununum. Veitt verða verðlaun í 16 flokkum sviðslista auk þess sem heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands verða veitt þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista.

   

100 boðsmiðar á Grímuhátíðina 2011

Share/Save/Bookmark

Gestir9_copy100 BOÐSMIÐAR fyrir þig á Grímuhátíðina 2011! Leiklistarsamband Íslands hefur ákveðið að gefa 100 boðsmiða fyrir almenna leikhúsgesti og þá sem hafa áhuga að taka þátt í fjörinu í salnum á Grímuhátíðinni 2011. Hátíðin sem verður glæsileg að vanda, verður haldin fimmtudaginn 16. júní í Borgarleikhúsinu, í beinni útsendingu á Stöð 2 og hefst með fordrykk kl. 18.30. Miðarnir verða gefnir þeim 50 gestum sem fyrst senda tölvupóst á miðasöluna í Borgarleikhúsinu. Tveir miðar á mann! Nú er um að gera að nota tækifærið, baða sig í kastljósinu, hitta sviðslistastjörnurnar og njóta kvöldsins í góðum félagsskap. Netfangið er midasala@borgarleikhus.is - Góða skemmtun!

   

Fleiri greinar...

  • Tilnefningar til Grímuverðlauna 2011
  • Tilnefningar opinberaðar 6. júní kl. 16
  • Handhafar Grímuverðlauna 2010
  • Handhafi heiðursverðlauna 2010
  • Grímuhátíðin 2010 í Þjóðleikhúsinu 16. júní
  • Tilnefningar til Grímuverðlauna 2010
  • Grímuhátíðin 2009 í máli og myndum
  • Handhafi heiðursverðlauna 2009
  • Handhafar Grímuverðlauna 2009
  • Tilnefningar til Grímuverðlauna 2009

  • Fyrsta
  • Fyrri
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • Næsta
  • Síðasta
Gríman - Íslensku sviðslistaverðlaunin   |   Tjarnarbíó   |   Tjarnargötu 12   |   101 Reykjavík   |   griman@griman.is

©2006-2011 Hringbrot