Tilnefningar til Grímunnar 2025
Mánudaginn 19. maí voru tilnefningar til Grímunnar – Íslensku sviðlistaverðlaunanna tilkynntar í Tjarnarbíó.
Í ár voru 66 sviðsverk skráð af leikhúsum og sviðslistahópum í Grímuna, 8 óperur, 13 dansverk, 1 útvarpsleikverk og 33 leikverk ásamt 11 barnaleikhúsverkum.
Valnefnd skipuð 12 fulltrúum hefur fjallað um sýningar leikársins. Meðlimir valnefndar eru fagfólk sem sinnir starfi sínu sem einstaklingar og meta framlög út frá eigin sannfæringu. Hún hefur valið hámark 5 einstaklinga, teymi eða verk í hverjum verðlaunaflokki í forvali Grímunnar er hljóta tilnefningu. Í aðalvali velur nefndin sigurvegara í hverjum flokki og verða verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn kl: 20:00 í Borgarleikhúsinu þriðjudaginn 10. júní og í beinni útsendingu á RÚV.
Tilnefnt er í 19 verðlaunaflokkum að þessu sinni: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari og leikkona í aðalhlutverki, leikari og leikkona í aukahlutverki, leikmynd, búningar og lýsing ársins, tónlist- og hljóðmynd ársins, söngvari ársins, dans- og sviðshreyfingar, dansari og danshöfundur ársins og barnasýning ársins. Að auki verða Hvatningarverðlaun valnefndar og heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands veitt á verðlaunahátíðinni þann 10. júní. Heiðursverðlaunin eru veitt einstaklingi er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi.
Tilnefningar Gríman 2025
Sýning ársins 2025
Hringir Orfeusar og annað slúður – Íslenski dansflokkurinn
Innkaupapokinn – Kriðpleir í samstarfi við Borgarleikhúsið og MurMur productions
Köttur á heitu blikkþaki – Borgarleikhúsið
Sýslumaður Dauðans – Borgarleikhúsið
Ungfrú Ísland – Borgarleikhúsið
Barnasýning ársins 2025
Bangsímon – Leikhópurinn Lotta
Blómin á þakinu – Þjóðleikhúsið
Ef ég væri grágæs – Ellen Margrét Bæhrenz
Jóla Lóla – Leikfélag Akureyrar
Orri óstöðvandi – ævintýra Orra óstöðvandi og Möggu Messi – Þjóðleikhúsið
Leikrit ársins 2025
Heim eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur
Innkaupapokinn eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Kriðpleir
Skeljar eftir Magnús Thorlacius
Sýslumaður Dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson
Ungfrú Ísland eftir Bjarna Jónsson í samvinnu við Grétu Kristínu Ómarsdóttur, leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur
Hvatningarverðlaun ársins 2025
Afturámóti Sviðslistahús
Fámennur en drífandi hópur ungra sviðslistamanna tók yfir Háskólabíó sumarið 2024 og hrinti úr vör nýjum sviðlistavettvangi sem stóð undir hátt í 40 viðburðum á tímum sofandi leikhúsa. Þar voru sýnd bæði ný og nýleg íslensk leikverk í bland við uppistand og tónleika svo breiðum hópi sviðslistafólks gafst rými til að vinna, þróa og sviðsetja hugmyndir sínar. Afturámóti er einstakt framtak sem svarar kalli frjórrar og ört vaxandi sviðslistasenu.
Leikhópurinn Lotta
Í tuttugu ár hefur leikhópurinn Lotta gerst víðreist um landsbyggðina með frumsamdar barnaleiksýningar sínar, uppfullar af ævintýragleði og galsa. Með starfi sínu hafa þau gefið börnum um land allt tækifæri til að upplifa leikhús á grænum túnum og skógarrjóðrum í heimabyggð svo oftar en ekki verður þeirra fyrsta leikhúsupplifun samofin sumri og náttúru. Framlag Leikhópsins Lottu til menningaruppeldis íslenskra barna er ómetanlegt.
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Síðastliðið leikár hefur Sigríður Ásta stigið inn í sviðslistasenuna af feiknar krafti og sýnt bæði frumkvæði og listræna fjölbreytni með eftirtektarverðum árangri. Hún leikstýrði óperunum Gleðilegi geðrofsleikurinn og Varstu búin að vera að reyna að ná í mig?, var danshöfundur og flytjandi í Konukroppar, var í burðarhlutverki í söngleiknum Við erum hér, að ógleymdu því að vera höfundur, framleiðandi og í titilhlutverki í söngleiknum DIETRICH með glæsilegri frammistöðu.
Vala Fannell
Um árabil hefur Vala Fannell verið mikilvirk í að efla vandaða sviðslistakennslu fyrir ungt fólk á Íslandi. Hún hefur talað fyrir áhrifamætti leiklistarkennslu í grunnskólum, tekið þátt í endurskipulagningu Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar, byggt upp nýja kjörnámsbraut á framhaldsskólastigi í sviðslistum við Menntaskólann á Akureyri og er nú skólastjóri Leikhússkóla Þjóðleikhússins. Ástríða hennar og kraftur setur mark sitt, svo um munar, á framtíðarkynslóðir leikhúsanna.
Leikstjóri ársins 2025
Gréta Kristín Ómarsdóttir fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Kriðpleir fyrir Innkaupapokinn, sviðsetning Kriðpleir í samstarfi við Borgarleikhúsið og MurMur productions
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir fyrir Óperan hundrað þúsund, sviðsetning Valgerður G. Halldórsdóttir hjá Crescendo, fyrir Svartan jakka í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Stefán Jónsson fyrir Sýslumaður Dauðans, sviðsetning Borgarleikhúsið
Þorleifur Örn Arnarsson fyrir Köttur á heitu blikkþaki, sviðsetning Borgarleikhúsið
Leikari í aukahlutverki 2025
Benedikt Gröndal fyrir Tóm hamingja, sviðsetning Gaflaraleikhúsið í samstarfi við Borgarleikhúsið
Björgvin Franz Gíslason fyrir Þetta er Laddi, sviðsetning Borgarleikhúsið
Fannar Arnarsson fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Friðgeir Einarsson fyrir Innkaupapokinn, sviðsetning Borgarleikhúsið
Hákon Jóhannesson fyrir Sýslumaður Dauðans, sviðsetning Borgarleikhúsið
Leikkona í aukahlutverki 2025
Berglind Alda Ástþórsdóttir fyrir Stormur, sviðsetning Þjóðleikhúsið
Berglind Alda Ástþórsdóttir fyrir Tóm hamingja, sviðsetning Borgarleikhúsið
Birna Pétursdóttir fyrir Sýslumaður Dauðans, sviðsetning Borgarleikhúsið
Katla Margrét Þorgeirsdóttir fyrir Köttur á heitu blikkþaki, sviðsetning Borgarleikhúsið
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Heim, sviðsetning Þjóðleikhúsið
Leikari í aðalhlutverki 2025
Ævar Þór Benediktsson fyrir Kafteinn Frábær, sviðsetning Leikhópurinn Annars ekkert í samstarfi við MurMur productions og Tjarnarbíó
Hilmir Snær Guðnason fyrir Köttur á heitu blikkþaki, sviðsetning Borgarleikhúsið
Ragnar Ísleifur Bragason fyrir Innkaupapokinn, sviðsetning Kriðpleir í samstarfi við Borgarleikhúsið og MurMur productions
Sigurður Sigurjónsson fyrir Heim, sviðsetning Þjóðleikhúsið
Þórhallur Sigurðsson fyrir Þetta er Laddi, sviðsetning Borgarleikhúsið
Leikkona í aðalhlutverki 2025
Ásthildur Úa Sigurðardóttir fyrir Köttur á heitu blikkþaki, sviðsetning Borgarleikhúsið
Birna Pétursdóttir fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir fyrir Litla Hryllingsbúðin, sviðsetning Leikfélag Akureyrar
Vala Kristín Eiríksdóttir fyrir Þetta er Laddi, sviðsetning Borgarleikhúsið
Þórey Birgisdóttir fyrir Ífigenía í Ásbrú, sviðsetning Leikhópurinn í samstarfi við Tjarnarbíó
Söngvari ársins 2025
Bryndís Guðjónsdóttir fyrir Brúðkaup Fígarós, sviðsetning Kammeróperan í samstarfi við Borgarleikhúsið
Hanna Dóra Sturludóttir fyrir BRÍM, sviðsetning MurMur productions í samstarfi við Tjarnarbíó
Herdís Anna Jónasdóttir fyrir Óperan hundrað þúsund, sviðsetning Valgerður G. Halldórsdóttir hjá Crescendo, fyrir Svartan jakka í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Una Torfadóttir fyrir Stormur, sviðsetning Þjóðleikhúsið
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir fyrir BRÍM, sviðsetning MurMur productions í samstarfi við Tjarnarbíó
Danshöfundur ársins 2025
Ásrún Magnúsdóttir fyrir Dúettar, sviðsetning Ásrún Magnúsdóttir í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og List án landamæra
Bára Sigfúsdóttir fyrir Flökt, sviðsetning Listahátíð í Reykjavík
Erna Ómarsdóttir fyrir Hringir Orfeusar og annað slúður, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Hooman Sharifi fyrir While in battle I’m free, never free to rest, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Margrét Sara Guðjónsdóttir fyrir Órætt algleymi, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Dansari ársins 2025
Aëla Labbé, Erna Gunnarsdóttir og Orfee Schuijt fyrir Flökt, sviðsetning Listahátíð í Reykjavík
Birta Ásmundsdóttir fyrir When a duck turns 18 a boy will eat her, sviðsetning Birta Ásmundsdóttir
Diljá Sveinsdóttir fyrir Hringir Orfeusar og annað slúður, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Erna Gunnarsdóttir fyrir Órætt algleymi, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Íris Ásmundardóttir fyrir Svartir fuglar, sviðsetning Pars Pro Toto í samstarfi við List án landamæra og Tjarnarbíó
Dans- og sviðshreyfingar ársins 2025
Ágústa Skúladóttir fyrir Hliðarspor, sviðsetning Animato
Cameron Corbett fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Marmarabörn fyrir Árið án sumars, sviðsetning Marmarabörn í samstarfi við MurMur productions og Borgarleikhúsið
Lee Proud fyrir Stormur, sviðsetning Þjóðleikhúsið
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir fyrir Litla hryllingsbúðin, sviðsetning Leikfélag Akureyrar
Tónlist og hljóðmynd ársins 2025
Arash Moradi fyrir While in battle I’m free, never free to rest, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Friðrik Margrétar- Guðmundsson fyrir BRÍM, sviðsetning MurMur productions í samstarfi við Tjarnarbíó
Jóhann G. Jóhannsson fyrir Tumi fer til tunglsins, sviðsetning Jóhann G. Jóhannsson í samstarfi við Big Bang Festival, Óperudaga og Hörpu
Skúli Sverrisson og Valdimar Jóhannsson fyrir Hringir Orfeusar og annað slúður, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Þórunn Gréta Sigurðardóttir fyrir Óperan hundrað þúsund, sviðsetning Valgerður G. Halldórsdóttir hjá Crescendo, fyrir Svartan jakka í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Lýsing ársins 2025
Gunnar Hildimar Halldórsson fyrir Fjallabak, sviðsetning Borgarleikhúsið
Mirek Kaczmarek og Jóhann Friðrik Ágústsson fyrir Sýslumaður Dauðans, sviðsetning Borgarleikhúsið
Ólafur Ágúst Stefánsson fyrir Árið án sumars, sviðsetning Marmarabörn í samstarfi við MurMur productions og Borgarleikhúsið
Pálmi Jónsson fyrir Hringir Orfeusar og annað slúður, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Pálmi Jónsson fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Leikmynd ársins 2025
Axel Hallkell Jóhannesson fyrir Fjallabak, sviðsetning Borgarleikhúsið
Gabríela Friðriksdóttir fyrir Hringir Orfeusar og annað slúður, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn
Kristinn Arnar Sigurðsson og Brynja Björnsdóttir fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Mirek Kaczmarek fyrir Sýslumaður Dauðans, sviðsetning Borgarleikhúsið
Tinna Ottesen fyrir Flökt, sviðsetning Listahátíð í Reykjavík
Búningar ársins 2025
Andri Unnarson fyrir Brúðkaup Fígarós, sviðsetning Kammeróperan í samstarfi við Borgarleikhúsið
Filippía I. Elísdóttir fyrir Ungfrú Ísland, sviðsetning Borgarleikhúsið
Guðný Hrund Sigurðardóttir fyrir Árið án sumars, sviðsetning Marmarabörn í samstarfi við MurMur productions og Borgarleikhúsið
Guðný Hrund Sigurðardóttir fyrir Óperan hundrað þúsund, sviðsetning Valgerður G. Halldórsdóttir hjá Crescendo, fyrir Svartan jakka í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Karen Briem fyrir Hringir Orfeusar og annað slúður, sviðsetning Íslenski dansflokkurinn