100 BOÐSMIÐAR fyrir þig á Grímuhátíðina 2011! Leiklistarsamband Íslands hefur ákveðið að gefa 100 boðsmiða fyrir almenna leikhúsgesti og þá sem hafa áhuga að taka þátt í fjörinu í salnum á Grímuhátíðinni 2011. Hátíðin sem verður glæsileg að vanda, verður haldin fimmtudaginn 16. júní í Borgarleikhúsinu, í beinni útsendingu á Stöð 2 og hefst með fordrykk kl. 18.30. Miðarnir verða gefnir þeim 50 gestum sem fyrst senda tölvupóst á miðasöluna í Borgarleikhúsinu. Tveir miðar á mann! Nú er um að gera að nota tækifærið, baða sig í kastljósinu, hitta sviðslistastjörnurnar og njóta kvöldsins í góðum félagsskap. Netfangið er midasala@borgarleikhus.is - Góða skemmtun!
< Fyrri | Næsta > |
---|